mánudagur, desember 29, 2003

Jæja... nú er nóg komið. Ég fór út að borða um daginn og það vill þannig til að ég þurfi að nota salernið á veitingastaðnum ( til að gera no.1 )... ég sé að þar er sameiginlegt wc fyrir kk og kvk... ok so be it! Þegar ég kem labbandi að salerninu sameiginlega sé ég að kk kemur labbandi út af klósettinu og ég fer inn og geri mig líklega til að nota salernið en sé það fljótlega að það er ónothæft því kk sem áður notfærði sér þjónustu salernisins hafði gjörsamlega migið á gólfið í kringum klósettið og ég á bágt með að trúa að hann hafi nokkuð hitt oní af því þetta var töluvert magn skal ég segja ykkur!!! Þar sem ég var í síðbuxum og hafði ekki alveg lyst á að dífa þeim oní miguna undan kk fyrrnefnda... var ég í vandræðum, var að spá í hvort ég ætti bara hreinlega að míga á gólfið eða kalla á þjón til að þrífa ósköpin!! Þetta er alveg ferlegt!!! Hvað er að sumu fólki sem kann ekki að míga.. ég hef gert tilraun til að pissa standandi með skemmtilegu tóli sem er trekt úr blaði sem er selt í betri verslunum fyrir konur sem fara á fjöll og komast ekki á klósettið og hafa ekki lyst á að fá blöðrubólgu með því að dífa bossanum í snjóinn... þetta vafðist ekki fyrir mér og var ég búin að fá mér nokkra öl fyrir atburðinn. Þannig að áfengið er ekki afsökun í þessu frekar en öðru! Ég ætla hér og nú að stofna félag F.Á.U.S.K.B.K. (félag áhugafólks um sitjandi klósettferðir beggja kynja) og lýsi líka eftir hönnuði sem treystir sér í að hanna STÓRA trekt með stækkunargleri og helst ljósi líka sem hægt er að vippa ofan í klósettið og kk getur lagt brunaslöngurnar sínar ( sem svona erfitt er að ráða við ) oná trekktina og migið í rólegheitum :) fyrir þá sem ekki treysta sér til að pissa sitjandi!!!!

sunnudagur, október 19, 2003


Which PPG are you?


Which of Valerie's friends are you?

Hvað er þetta með þessi spurningamerki????????????????????????????

föstudagur, október 17, 2003

Well... laus tími til að blogga síðan í júní.... geðveikt stuð að vera mamma :) Ég er nú orðin ansi léleg í blogginu og kann ekki shit, svo þið verðið að fyrirgefa mér. Nú var maður bara að koma frá Dk, frá Sys sem er gjörsamlega að meika það þarna úti, den lille pige!! hehehe... Roza var gaman að kíkja á hana. Jónas Elvar ofurkrútt var náttla í essinu sínu að hitta frænkuna sína og alla danina sem tala bara úglensku og drekka bjór meget glad. Jæja... en lífið snýst gjörsamlega við þegar maður verður foreldri það eina sem ég geri þessa daganna er að blanda graut, setja í þvottavél, brjóta saman þvotti og skipta á bleyjum þannig að ef ég ætti að tjá mig eitthvað hérna á blogginu snérist það um lítið annað en hvar ódýrustu bleyjurnar fengjust, hvaða straujárn virka best og hvaða barnagrautur og þurrmjólkur virka best blablabla... eitthvað sem enginn nennir hvorteðer að lesa um þannig að ég læt staðar numið og skrifa eitthvað þegar ég er komin í betra samband við umheiminn!!! búggalú & balli bimbó

mánudagur, júní 23, 2003

Jæja .. núna er litli prinsinn minn kominn í heiminn, loksins, föstudaginn 13. júní og er mesti englabossi í heimi :) Ég mun ekki vera dugleg að blogga á næstunni því ég þarf núna að knúsa og gefa brjóst sem er náttúrlega miklu skemmtilegra en allt annað... þannig að guggan er komin í barnseignarfrí frá blogginu í óákveðinn tíma... en kemur kannski með heitustu fréttirnar af prinsinum öðru hverju!! Astalavista amigoz!!!

þriðjudagur, júní 03, 2003

Er svo þreytttttt.....!!! Svaf í 3 tíma í nótt..... Malli sparka....... ég sofa..............

mánudagur, júní 02, 2003



Týnd..... Fundin.....
...á skíðum skemmt´ég mér trallalalalaaaa.....lalalalalaaaaaa!! hvar er sumarið niðurkomið!!!!? er ekki örugglega kominn júní???, manni líður eins og hunangsflurgunum sem koma óvart úr dvala í byrjun maí og skilja svo ekkert í því þegar þær frjósa við ljósastaura og bíla í blíðu sumarsins...

sunnudagur, júní 01, 2003

komment-boxið er bilað ....huuuuhuhuuhuhuhhuuu!!! *pirr* *pirr*
Var að lesa um meðgöngu á vefsíðu, rakst á þetta .....

Dagur 6
Er köttur á heimilinu? Saur úr köttum, hundum og jafnvel hráu kjöti er hættulegur barnshafandi konum. Það inniheldur sníkil sem kallast toxoplasma. Forðastu að tæma kassa með kattasandi og notaðu hanska við garðyrkjustörfin.

SAUR ÚR HRÁU KJÖTI!!!! Hef ég misst af e-hv?
Bloopy! Bloopy, bloopy, bloopy! n-n
You are a Lava Lamp.


What Fruity Object Are You?
brought to you by Quizilla

laugardagur, maí 31, 2003

... var að komast að því að ég hef ekki lengur gaman af Formúlunni... skil ekki hvernig Mr.Jones nennir að horfa á þessa vitleysu. Við ætluðum að fara að skoða sólmyrkvann í nótt en þegar við sáum rós-rauða-rúmið okkar hættum við skyndilega við, vorum meiraðsegja búinn að redda okkur gleraugum fyrir þetta allt saman, en það eru ekki nema 40 ár í næsta sólmyrkva (séð frá Íslandi)! þannig að þessi gleraugu er hvergi nærri ónýt. Við Mr.Jones förum í ellinni eitthvað upp á fjall með kaffibrúsa og sherrí og horfum á næsta sólmyrkva, ekki spurning!

föstudagur, maí 30, 2003

Krakkar eru yndislengir....

Kennari: "Vilt þú nota vettlinga?"

5 ára stráku: "Nei, ég ætla út á höndunum!"

-----------------------------------

5 ára stelpa hoppaði og hristi fætur reiðilega, er hún fór í útigallann.

Kennari. "Hvað er að?"

Stelpa. "Ermin í löppinni er svo krumpuð!"

-----------------------------------

5ára strákur mætti einn morguninn og hóstaði mikið: "Hverslags rolluhósti er þetta eiginlega í mér!?"

----------------------------------

"Kötturinn minn var dáinn og Guð fæddi svo annan kött, sem var Jesú besti vinur barnanna." (4 ára strákur)

----------------------------------

5 ára stelpa: "þú ert prins og hún ætlar að giftast þér því hún er prinsessa"

5 ára strakur: "Ég ætla samt ekki að giftast henni því ég ætla að vera hommi þegar ég verð stór!"

---------------------------------

Það er búið að borga fyrir börnin í leikskólann svo mega þau ekki gera það sem þau vilja. (4 ára strákur)

fimmtudagur, maí 29, 2003

Jæja... núna eru greinilega meðgönguhormónin að rjúka uppúr öllu !! Mér til mikillar undrunar kom eitt lag mér til að gráta, grenja og væla uppúr þurru! Væmið ekki satt!!!! Lagið er - Let it be - með bítlunum!!! shííí.. þetta er orðið ansi scary hérna... táraflóð aldarinnar og þvílíkt vökvatap .... úff best að fá sér vatn!
Núna fer ekkert meira rólegt og rómantískt inn fyrir mínar græjur !

miðvikudagur, maí 28, 2003

þriðjudagur, maí 27, 2003

Black bird flyyyyyyyyyyy....black bird flyyyyyy, in to the niiiiiiiiight to the morning liiiiight......
Er enn að jafna mig eftir grillveislu dauðans!! Mr. Jones fjárfesti í þessu líka brjálaða gasgrilli sem hefur logað glatt á sl.3 daga, eða síðan það var keypt!! Pylsur, naut, svín, grænmeti og kjúklingur... það sem ekki hefur verið grillað! það væri gaman að gera B.A. ritgerð um grilláráttu landsmanna þegar sólin fer að skína :) Annars voru Harpa, Ingvar og afkvæmi hérna í mat á sunnudaginn og allir urðu saddir og sáttir, enda fáir eins miklir snilldar grillarar eins og Mr.Jones sem á sérstakann grillgalla með hatt og tilheyrandi hjehjehje... set mynd af því hér inn fljótlega ;)

föstudagur, maí 23, 2003

Jæja kvöldið í kvöld verður ekki fjölbreytilegra en hin kvöldin í heimi óléttunar, ætli maður neyðist ekki til að horfa á fegurðina á stöð2 og ljúki kvöldið á lokamyndinni á RUv. Ég þarf að setjast niður og skrifa hreyfingar bumbubúanns og samdrætti, halda bókhald yfir þennann prakkara... úFFFFF...!! Mamma mía, ekki ætla ég að fjölga heiminum meir... allavega ekki næstu 5 árin.. þið öfundsverðu djammarar helgarinnar, njótið ykkar og blómstrið í áfengisdauða og þynnku fram eftir sunnudegi hehehh ...

((((---ELSKU SYSTIR... TIL HAMINGJU MEÐ ÁFANGANN OG ÚTSKRIFTINA !!! LENGI LIFI LÁZA!!!!!---))))

Var að hlusta á effemm áðan (kemur mjög sjaldan fyrir!!!) þáttinn dingdong, hvað er eiginlega í gangi með hann Pál Óskar! ég er gjörsamlega búin að missa allt álit á manninum, hann virðist vera massa tapsár yfir Birgittunni eða hvað er annars í gangi, fílar hann ekki lagið eða er Birgitta kannski bara aðeins flottari díva en hann??????
og Helga Möller mín.... haltu þig bara við Lottóið!!!!!

fimmtudagur, maí 22, 2003

Er virkilega farin að spá í að fá mér Tonic.... ekkert gos til!!! en spurn. með mallabúann, það er kímin í tonic, gæti komið fæðingu af stað hmmmmmmmmmm....
You are Morpheus-
You are Morpheus, from "The Matrix." You
have strong faith in yourself and those around
you. A true leader, you are relentless in your
persuit.


What Matrix Persona Are You?
brought to you by Quizilla
Jæja núna er ég endanlega að morkna hérna heima... þori ekki út, gæti misst vatnið niðrá Torgi og þurft að leggjast niður og hringja í sjúkrabíl, ekki alveg til í að liggja í legvatnspolli fyrir framan alla túristanna á torginu, talandi í gsm-símann og bíðandi eftir sjúkró!!! Sunna kom í heimsókn í gær og talaði ekki um annað en fæðingu lamba og folalda og hversu há dánartíðni væri meðal nýfæddra lamba, ekki gaman að hluzta á það þegar maður er að höndla samdráttarverki og er frekar ílla við kindur. Það er sind að vera kind! En leið og mallalingurinn er skorðaður fer ég út og beint í kirkjutröppu-maraþon!! Það er neblilega lygilega stutt niðrá spítala frá kirkjutröppunum þannig að ég gæti kannski bara skokkað beint niðrá spítala ef "brautryðjandinn" myndi kíkja út. Annars er hreiðurhvötin alveg að fara með mig eða þannig... það er ekkert nógu skítugt hér þannig að það þurfi að þrífa, ofninn og ísskápurinn eru alveg sjæní, kannski ég banki hjá Steina niðri og spyrji hann hvort honum vanti húshjálp!! Tns-tækið er alveg að bjarga mér hérna, þetta er raftæki, svipað og slendertone og trimform, kippir í einhverja vöðva þannig að samdrættirnir verða að engu... ég verð kannski bara orðin megakroppur e. fæðingu hehehe...
Ísland er smáþjóð....
1) Forsætisráðherran er í símaskránni

2) Það er líklegt að þú rekist á forsetann eða biskupinn í sundi

3) Pulsa með öllu er ekki þekkt vörumerki erlendis

4) Fjórði besti maður í heimi í tugþraut er þjóðhetja

5) Aðal-spurningakeppnin er á milli fólks sem hefur ekki aldur til að kaupa vín

6) Það telst vera sigur í landsleik þegar gert er jafntefli í fótbolta

7) Skandalar í ríkisfjármálum snúast um laxveiðileyfi

8) Ef íslenskur skíðamaður dettur í brekkunni er þjóðinni brugðið

9) Þegar minnst er á Íslending í erlendum fjölmiðli segja íslenskir fjölmiðlar frá því

10) Það er ekki hægt að kaupa sér bjór kl. 6 á morgnana

11) Sjoppuræningjar fá sama rými í fjölmiðlum og fjöldamorðingjar annars staðar

12) Þegar frægt fólk rétt svo millilendir hér telst það frétt

13) Við sækjum erlenda flóttamenn á FOKKER

14) Forstjórinn í stærsta skipafélaginu er stjórnarformaður í eina millilandaflugfélaginu

15) Höfuðstöðvar stærsta tryggingafélagsins eru fimm hæða

16) Fólk snýr sér við úti á götu ef það sér mann með arabískan höfuðklút

17) Á Íslandi eru fleiri rollur en fólk

18) Á Íslandi eru engir einkaspæjarar

19) Það er hlé í bíói

20) Forsætisráðherra vors lands opnaði fyrsta McDonald's staðinn á landinu

miðvikudagur, maí 21, 2003

Vááá... er ekki að meika heimilið mitt núna, er búin að vera heima í 1 og 1/2 dag og er að verða gúgú!!! Er í miklu stuði með TNS tækið stillt í botn til að linna samdrætti og bakverki sem hafa hrjáð mig síðan kl.3 í nótt. Ég skal segja ykkur það að bumbubúinn er byrjaður að ryðja veginn og það með látum... hvort hann komi fyrir mánaðarmót eða ei, skal ég ekki segja, mig grunar að Mr.Jones eigi mjög stórann hlut í honum þannig að þetta gæti allt eins verið bara spurning um smá athygli og stríðni að hálfu bumbubúans :) Hef ekki haft jafn litla matarlyst síðan á Spáni, enda ekki mikið pláss í mallanum...vona að gubbustandið byrji ekki aftur!!! úff, búin að pústa út ! shhhíí hvað þetta var gott. Yndislegt að nota bloggið sem andlega ruslafötu!!! ahhhhhh...

þriðjudagur, maí 20, 2003

Verð undir feldi í dag.... aðallega að hugsa um....

að gera eitthvað í mömmu-málunum mínum, hvernig vil ég fæða, hvað ætla ég með mér á fæðingadeildina, á ég að þrífa höllina mína eða ekki, hvernig á að skipta á bleyjum, hvaða deifingar á ég að fá mér þegar að stóru stundinni kemur, æfa slökunaræfingar og höndla samdráttarverki!

sumarið er að koma og engin sól, er eins og albínói með blá augu, verð að gera eitthvað í málunum!

af hverju hunangsflugudrottningar eru svona vondar?

sunnudagur, maí 18, 2003

Jæja, helgin á enda, mútta farinn og 37.vikur búnar af meðgöngu. 3 vikur eftir !!! Er að spá í að kíkja til RVK á föstudaginn og kíkja á sýninguna hjá Sys og óska henni til hamingju með alla frábæru áfanganna sem hún hefur afrekað, þessi snillingur! :) Vona bara að ljósan leyfi mér að fljúga, annars verð ég bara heima og drekk Tonic og fæ mér labb upp kirkjutröppurnar thíhhíhí og enda upp á fæðingadeild í Eurovisionfárinu. Er Eurovision farið að snúast meira um kynþokka en áður eða er ég bara orðin eitthvað klikk...? mér finnst öll lönd vera að trana fram einhverjum sólgleraugna chocko-um með mjaðmahnikki og fáklæddum meyjum í heitapottum. Ég er reyndar ekki búin að sjá öll lögin. Markaðssetning og kynþokki eiga reyndar góða samleið s.br. Flugleiði og dirty weekend in Iceland ;) Eurovision hefur alltaf verið smá svona .... söngvamarkaðssetningarkeppni, sem mér finnst reyndar cool! Áfram Ísland!

föstudagur, maí 16, 2003

Ó NEI !!!
Samræmdu prófin eða einhver próf búin!!! Helv... unglingapakk sífullt og syngjandi hérna fyrir utan, nú veit ég hvernig nóttin verður (píkuskrækir og öskrandi óharðnaðir drengir !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!)
hei hei hei!!

Dagurinn í dag er búinn að vera uppfullur af gleði og hamingju, fór í vinnu og skemmti mér konunglega við vöfflubakstur, símsvaranir, sólböð og kisu-klöppum. Það eru nebblilega 4 kisur sem sækja reglulega á hótelið.. það er skógarkötturinn ógurlegi, sem á ekkert líf og er leiðilegasta köttur sem ég veit um, hann er ótrúlega heimskur og sívælandi... hei hann er köttur, honum á að líða vel!!!, svo er ein læða sem heitir Lilla hún er hetjan sem lifði af misþyrmingar og fannst við hótelið nær dauða en lífi, köttur með mikla sál. Svo er það Grási, fjósaköttur sem heldur að hann sé hundur, drekkur vatn og nýtur lífsins, gáfaðasti köttur sem sögur fara af, hef aldrei heyrt hann mjálma eða væla, en hljóðin sem koma frá honum eru mjög skrítin svona svipað eins og dimmraddað mal!!! Síðast en ekki síst önnur læða sem er kettlingafull og er systir Tinna (kötturinn sem ég átti) hún er algjör töffari og lætur lítið fyrir sér fara en er með mjög undarlegt augnarráð, eins og hún lesi hugsanir!!!

Þetta eru semsagt kisurnar í lífi mínu, set mynd af þeim inn seinna :)

fimmtudagur, maí 15, 2003

cupid
You are Valentine's Day! You like to be in love.
You see possibility in everything.


What Holiday Am I?
brought to you by Quizilla
Stjörnuspáin mín í dag er ekki mjög glæsileg!

Ljónið - 5/15/2003
Þú átt í einhverjum vandræðum með líðan þína sem þú bælir jafnvel og viðurkennir ekki hérna þegar stjarna þín birtist. Þú munt upplifa ómælda ánægju og gleði sem smitar vissulega út frá sér en ef þú finnur fyrir veikleika innra með þér ættir þú að virkja jafnvægi þitt með hreyfingu jafnvel. Hér kemur fram að ljónið virðist fullt af umhyggjusemi en sniðgengur í rauninni manneskjuna sem styrkir það. Settu þér tímamörk og taktu á málum líðandi stundar af kostgæfni.

Er að komast á jörðina aftur.....

Af hverju vakna ég alltaf kl.6.00 á morgnanna? Ég hef löngum verið kölluð svefnpurkan mikla, núna heiti ég súperguggan sem hellir upp á kaffi kl.6.10 á morgnanna og fer út og kaupi moggann og ligg yfir honum í lágmark klst. Tímar breytast og mennir og konur með. Ætla gjörsamlega að chilla heima í dag - ekkert áreiti meðtekið! Núna eru 24 dagar eftir af bumbudögum og er "Malli" orðinn ansi ágengur og fyrirferðamikill... en alltaf yndislegur! Það verður ábyggilega mjög tómlegt þarna í bumbunni eftir fæðinguna. En annars hefur þessi tími verið dásamlegur og ég gæti sko alveg huxað mér að ganga í gegnum svona meðgöngu aftur :) Sys er enn í Dk og gengur vel, hún á eftir eitt próf n.k. mánud.,þriðjud. og miðvikud. og svo kemur þessi elska heim 22.maí!
Jæja er að spá í að skríða upp í rúm aftur, er farin að geispa, ekki eins morgunhress og ég hélt, enda bíður mín, Sexy - Mr. Jones, með sín bringuhár og úfið hár ... læt það nú ekki fram hjá mér fara! bieie...

þriðjudagur, maí 13, 2003

Góðan dag! Dagurinn í dag er dásamlegur, sól og blíða, blóm og býflugur, ís og sólgleraugu, sumar og sólbrúnka :)

Ég var að velta fyrir mér launahækkun þingmanna, talandi um að hata pólitík en...., Hin svokallaða kjaranefnd úrskurðaði 3% launahækkun embættismanna 1. júlí 2002, 7% þann 1. janúar 2003 og þar var m.a. tekið tillit til þess að laun á almennum vinnumarkaði og laun opinberra starfsmanna hækka um 3% NÆSTU ÁRAM'OT!! Afhverju eru hækkanir embættismanna 10% á 1/2 ári en 3% hjá hinum almenna Jóni á 2 árum? Af hverju fá ráðherrar ca. 20% launahækkun á þessum árshelmingi á meðan litla Gunna og litli Jón eru kannski að vinna á leikskólum með grunnlaun undir 100.000 og kannski að borga af námslánum, húsnæði og annan kosnað m/börn!!!!!??

Einnig í sambandi við kosningarnar, ég vona að þeir sem meta kosningaatkvæði sitt sem "frelsi" og kusu gegn sjálfstæðisflokknum, finni enn það frelsi sem þeim hafði hlotnast þegar þeir fengu kosningarétt. Þjóðin vill ekki sjá Sjálfstæðisflokkinn við völd, en hver ræður???? ekki þjóðin, ekki litla Gunna og litli Jón!!! heldur enginn annar en Stóri mikli Flokkur Íhaldsins...

Af hverju voru þessar launahækkanir ekki tilkynntar fyrr!!!! Þetta hefði verið mun fréttnæmara heldur en smeðjuglottin á Halldóri Ásgrímssyni og "Kóngnum"!!!

sunnudagur, maí 11, 2003

Ég vil koma einu að hér af því kommentboxið mitt er bilað eins og er... í sambandi við kosningaatkvæði til sölu, sem var reyndar "pura" djók! Einhver NN vill halda því fram að það að selja atkvæði væri eins og að selja frelsi og jafnvel líf sitt... Guggan mótmælir þessu og segir að atkvæði til kosninga gefur nákvæmlega ekkert frelsi(kannski pínu falskt frelsi!) af því þú kýst bara flokkana, en ekki menn og málefni. En samt... enginn keypti atkvæðið mitt og ég kaus, en mér finnst ég ekkert sérstaklega frjáls fyrir því eða eiga meira líf en áður! Ég meira aðsegja horfði á kosningavökuna og skemmti mér yfir henni! Það þýðir ekkert að tala um pólitík við mig, því ég er ópólítískasta manneskja í heimi og finnst póltík ljót TÍK og minnir helst á sandkassaleik í leikskólum, þar sem krakkar metast um hver á sterkasta pabbann og hver ætlar að bjóða hverjum í ammælið sitt... og hana nú!!! Plís leyfið mér að hata pólitík!!

laugardagur, maí 10, 2003

Gleðilegan kosningadag!... (fyrir þá sem finnst hann gleðilegur!)
jaajjaaa.. komið að kosningum eina ferðina enn... mér finnst ég alltaf vera að kjósa. Fór í ammæli í gær og þar var sko ýmislegt rætt um kosningar og liti og kjördæmi og vinstri og hægri og svoleiðs... ég ákvað fyrir löngu að þetta er allt sama tóbakið! þannig að þar sem ég er hætt að reykja er ég líka hætt að kjósa. ÞAnnig að ég auglýsi hér atkvæði til sölu!

miðvikudagur, maí 07, 2003

Hahahahaha!!!!

Þið verðið að kíkja á frásögur frelsarans þetta er hrein snilld og það sem meira er .... ég hef heyrt að það leynist sannleikskorn í þessu öllu saman, hvað ætli feministinn segi við þessu fylgjandi/andvígur?

þriðjudagur, maí 06, 2003

Það er svo fyndið...

Við þekkjum einn tölvugaur, þ.e. gæjinn sem seldi okkur tölvuna, hann er æði, vill allt fyrir okkur gera, hjálpa okkur með tölvuna og svoleiðs en hann bara kann ekki á tölvur samt er hann að verzlunarstjóri í tölvubúð... hann selur okkur alltaf eitthvað vitlaust, vitlausan prentara, vitlausan pappír í prentarann, vitlausa leiki og vitlausan harða disk, æ samt er hann algjör gullmoli!!! Hvað get ég sagt tölvan er í rúst en samt er ég ánægð að til sé fólk sem er allt af vilja gert :)

Var að tala við Sys í dag, hún er að fara til Dk á föstudaginn þessi elska í inntökupróf og er að vinna hjá Símanum, greyið. Það að vinna hjá Símanum er eins og að vinna við að lesa símaskránna aftur og aftur undir eftirliti svokallaðra "varðstjóra". Þú mátt ekkert fara nema með leyfi "varðstjórans" ekki einu sinni á klóstið og skalt sko ekki voga þér að spila kapal á tölvuna þína þegar lítið er að gera, hvað þá að nota þjónustu Símans, internetið... bara stara og bíða eftir að næsti kúnni hringir og drullar yfir þig!!!! Fólk sem notar þjónustu Símanns er vinsamlega beðið um að temja sér kurteisi, mannasiði og þakklæti áður en það dæmir og drullar yfir litla símamanninn, því hann er það sem heldur þessu skítafyrirtæki gangandi.

Horfði á kosningaáróður e. fréttir þar sem m.a Sjávarútvegsráðherra sat fyrir svörum, hvers á þjóðin að gjalda og hvað skal kjósa þegar aðeins fávitar eru í framboði, það er alveg sama hver er litið... Samfylkingin er of tvístígandi í öllum málum, VG eru of öfgakenndir og glassúrkenndir fyrir minn smekk, NýttAfl er of nýtt, Frjálslyndir eru of miklir freðfiskar, Framsókn er of grænt og glært og Dabbi er leiðilegur! Ég held ég skili auðu eða setji x við sex :)

mánudagur, maí 05, 2003

Ég gjörsamlega veit ekki neitt þessa daganna.

Tölvan mín gengur á litla vísinum í dag... er með mjög góða tölvu og bestu tenginuna sem völ var á fyrir 3 mánuðum en samt er tölvan mín kölluð snigillinn þessa daganna!!!!

Ég er orðin örfhent allt í einu, það er satt. vinstri höndin virkar betur en hægri, enda á ég í mestu basli með að pikka á tölvuna. Kannski fylgifiskur óléttunar! aldrei að vita!!!

Það besta sem ég fæ er bleikur extra og ég fer með ca.4 poka á dag, vona að ég sé ekki að verða örfhent út af því! :(

Hvernig getur maður gleymt barnafötunum í þvottavélinni í heilan dag, ég sem var búin að hlakka svo til að byrja að þvo litlu sætu barnafötin... en ég, fullkomna mamman, gleymdi litlu krúttlegu fötunum í þvóttavélinni í allann dag þannig að núna eru þau öll krumpuð :´( .... ætla sko að bæta "Malla" þetta upp með að strauja öll sætu fötin hans á morgun allt frá sokkum upp í lök!!! (Maður er ekki einu sinni orðin mamma og strax byrjuð að klúðra öllu) hvernig mamma verð ég eiginlega?????

HASH(0x873408c)
Venus- Probably an animal lover, u share your
kindness and love with everyone! U love
everyone no matter how bad they want you dead!
You tend to do favors for everyone and do other
people's homework for a brownie a day. Share
the love


What Planet Are You!?
brought to you by Quizilla

sunnudagur, maí 04, 2003

Er að kafna úr myglulykt!!! Við elduðum kjúkling í gær og það mætti halda að hann væri genginn aftur með þvílíku fjaðrafoki og myglulykt!!! HJÁLP!
Guggan komin aftur eftir helgarfrí með new look... múttan var í heimsókn og klippti og litaði, þannig að ég er orðin human aftur. Annars er helgin búin að vera ljúf að vanda. Mikið etið og hlegið og neglur nagaðar og bumban strokin. Múttan er strax byrjuð að dekra "Mallann" þó hann sé enn í móðurkviði, bíð bara eftir að hún fari að næra hann á nammi, kannski hún stingi sleikjó í gegnum naflann minn og segi honum að segja "amma" hehehehe!! neibbs ekki mútta hún er yndisleg og búin að hjálpa mér helling í barnafatakaupum og flutningum á hinu og þessu úr bænum og eldamennsku og hárstússi og .... endalaust mætti telja!! Besta mamman í heiminum :) Við erum semsagt búin að vera í dekri ég og Mr. Jones alla helgina og hafa það bezt! Allt er tilbúið fyrir bumbubúann, bara bíða og bíða og bíða og bíða...

fimmtudagur, maí 01, 2003

HASH(0x84ff30c)
You are Dancing Queen/King! You are in with all the
fashions and have all the skill to be a
popstar!


Bubblegum quiz
brought to you by Quizilla

miðvikudagur, apríl 30, 2003

Nú er verið að setja á laggirnar Trainspotting 2, sem eru gleðifréttir allavega fyrir mig :). En fyndnast í stöðunni er að Danny Boyle sem leikstýrir segir að aðalleikararnir sem leika aftur sín hlutverk sem heróínneytendur þ.e. Johnny Lee Miller, Ewan Mcgregor og Robert Carlyle líti of vel út og grunar þá m.a. um að nota andlitskrem... úllalaaaa heróínneytendur með andlitskrem. En annars er Danny fullviss að geta sjúskað þá aðeins til og fengið þá til að sleppa beauty-blundunum og andlitskremunum fyrir væna fúlgu! Enda stórleikarar þar á ferð!!! :)
Vona að ég verði á fæðingadeildinni á kosningadaginn... góð afsökun fyrir að þurfa ekki að kjósa!!!
Við Mr. Jones fórum í foreldrafræðslu í morgun, þar sem við fengum kennslu í nuddi og slökun, vá hvað er gott að fara í slökun... er ennþá hálfmeðvitunarlaus!! Veðrið hér á Ak. er engu líkt, það er búin að vera mikil sól og hiti undanfarna daga, þannig að tréin eru vel græn en svo er snjókoma í dag, 1-2° hiti og hunangsflugur flörandi útum allt.... Skrítið pleis! Múttan mín er einmitt að koma í heimsókn um helgina, kannski þessvegna sem "Malli" er svona ofvirkur, hann er líklega að æfa öll spörkin sem hann ætlar að sýna ömmunni sinni! Annars eru 38 dagar í fæðingu!!! OMG, maður er að verða móðir! Sys er gjörsamlega að meika það í hönnuninni, hún er sko hönnuður framtíðarinnar og er að fara til Denmark á næstu vikum í inntökupróf, ekkert smá spennt fyrir hennar hönd :), Áfram Lára....

mánudagur, apríl 28, 2003

Vá, sá einhver "grillið" í Kastljósinu í kvöld, Þorfinnur Ómarsson var gjörsamlega tekinn í gegn, ætli hann endi á Kvíabryggju eins og Árni kallinn! Pælið samt í að eiga farsíma uppá 99.000 kall, ma' r myndi sko ekki lána hann hvert sem er, efast um ég myndi þora að hringja úr honum eða leyfa öðrum að hringja í hann. Hvort ætli hann versli við Símann eða OgVodaphone???

sunnudagur, apríl 27, 2003


You have the Power of Flight!


What's Your Magic Power?
brought to you by Quizilla

laugardagur, apríl 26, 2003

liggaliggalái ... ég fæ dekur í kvöld! Mr. Jones ætlar að elda fyrir 3 s.s mig, hann og "Malla"!! og svo verður klikkað vidiokvöld sem verður með ákveðnu smökkunarívafi þar sem ég keypti alls konar hlunkafrostpinna... gulan, fjólubláan, grænan, svartan og appelsínugulan. Vííííí!!! Það vill gerast að maður breytist í barn eftir að maður verður óléttur, vona ég !
MindyGuiding
Mindy Lewis (Melinda Sue): ert algjor frekja og
pabbastelpa og faerd thad sem thu villt! Thu
ert fatahonnudur a uppleid og varst a leidinni
ad giftast syni fyrrverandi konu fyrrverandi
astmanns thins. Ekki orvaenta tho thu hafir
horfid i bili, thu kemur aftur!


Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla
Thíhhíhí... komin mynd af tilvonandi pabbanum Mr.Jones :)
..... gleymdi feministunum sem koma sífellt á óvart, fatta ekki alveg hvað er á seiði þar, en 2 feministar mættu á ungruisland.is keppnina og þóttust vera með áróður og gáfu bol og fengu aðeins að tjá sig á kosnað kynnanna, vei vei!. Skil ekki alveg áróðurinn eða baráttumálin á þeim bæ. Hvað er feministi - svarið var "maður eða kona sem gera sér grein fyrir misrétti kynjanna og finnst að koma eigi á jafnrétti!!! Hvað er það nákvæmlega sem feministar meina með þessu!!! Er mikið misrétti eða er ég blind! Ég er kannski með typpi án þess að vita það! Allavega er feministi kk.orð, HANN feministi, ekki hún feministi ... kannski ÞAÐ feministi. Allavega get ég ekki sagt að ég sé feministi!
Jæja vandræðilegasta móment vikunar á enda, vona ég! Bara það að horfa á Ungfrú Ísland punktur is , lét mig huxa um afhverju vorum við á annað borð að flytja úr torfkofunum, þetta minnti helst á ræðukeppni 3. bekkinga í Grunnskóla Hálendisins o-r something! Um hvað snerist allt þetta stress og vandræðagangur???.. kynnarnir Solla og Dáni stóðu sig með eindæmum illa, eins og hvað hann Dáni stendur sig vel í öllu öðru daðri og dýpstu laug einnota stefnumótanna, ætti hann alls ekki að láta sjá sig á svona mannamótum. Stúlkurnar voru að sjálfsögðu glæsilegar að vanda, misbarnalegar náttúrlega og misgáfaðar líklega líka, og tískusýningarnar voru mishallærislegar. Sisley- og Park- tískusýningarnar áttu vinninginn í frábærum og flottum sýningum, húrra fyrir þeim! Úrslitin komu svosem ekki á óvart þó ég sé að sjálfsögðu ekki sammála dómnefndinni er þetta hin glæsilegasta stúlka .... Takk fyrir!

föstudagur, apríl 25, 2003

Ætla sko að fylgjast með Ungfrú island.is.... Áfram Pólland!!!
Sá/Sú sem verður nr.1000 í heimsókn á síðuna, verður að skrifa í gestabókina!!!! Því sá/sú hin/n sama/i fær að gjöf geisladisk með Gogga Goði (George Michael)!!!!
Horfði á nýju Madonnumyndina í gær, Swept Away.. ætti frekar að heita "Slept Away"! mæli EKKI með henni, ég bara varð að sjá hvað hún var léleg! Guy Ritchy er gjörsamlega búinn að missa kúlið eftir hann giftist dívunni sem bara því miður ætti fyrir löngu að vera farin að hætta að leika og syngja og finna sér eitthvað annað að gera!! Tæknibrellurnar sem sýndu vaxtalagið og hið fullkomna andlitsfall skvísunar hefði betur átt að fara í að reyna að gera hana að betri leikara! Greyið Madonna!!!
Í gær pöntuðum við Mr.Jones pizzu hjá Domínós sem heitir "ein eldheit" og hún stóð undir nafni... var í allt gærkvöld að kæla á mér kjaftinn og beið eftir að bumbubúinn fengi nóg á matarsvalli móður sinnar og flytti að heiman!! Þeir ættu að taka fram á matseðlinum hvað sé ráðlagt óléttum konum, konum með barn á brjósti og viðkvæmu fólki!! Því Mr.Jones er óður í sterkan mat var ekki að meika'ða, this was much2much, enda brjóstssviðatöflur heimilisins uppurnar!

fimmtudagur, apríl 24, 2003

Nýtt próf .... !!!
rabbit
Mean lil fellow, arn't you?


What Monty Python Character are you?
brought to you by Quizilla
Gleðilegt sumar! Content été! Contento estio! Glücklich Sommer! Felice estate! Lycklig sommar! Iloinen suvi! Beleszeretett födémgerenda! Hau'oli kau wela! Gembira panas! Szczesliwy lato!
Bloggið mitt er bilað......... forkræjíngádlád!!! Ætli ég hafi sagt eitthvað of dónalegt þannig að bloggerguðinn hafi bara köttað á mig :(
Af hverju er bloggið svona seinvirkt...... það er nákvæmlega ekkert að gerast hér, er búin að skrifa fullt, damnnnn....

miðvikudagur, apríl 23, 2003

Jæja 22 stiga hiti á Akureyrinni, Ljúft, ekki satt bara 5 stig í Rvk. hehehhe djókísmókí!!! En sannleikurinn er sá að það var 22 stiga hiti hér på Rådhuspladsen on Akureyricity, dont know about Rvk en það er alltaf skítakuldi þar ;) Núna er hitinn 14°c enda kominn tíma á að kæla hjólabrettagæjanna og allar óléttu- barnavagnakonurnar út á torgi niður!

Er að pæla í að sækja um í módelsamtökunum, ég er svo grönn, eða þannig hehehe !

þriðjudagur, apríl 22, 2003


Whhhheeee! You're Boccioni's bronze sculpture
"Unique" and it sure is. You scare
small children in the Museum of Modern Art, New
York.


Which Piece of Modern Art Are You?
brought to you by Quizilla
Ég veit svo sem ekki hvað þér finnst um það...en þú varst kvenmaður í þinni síðustu tilvist.
Þú fæddist í síðasta lífi á stað nálægt Norður-Evrópu á því herrans ári 1200.
Þú starfaðir sem: þjálfari, dýrahirðir og fuglatemjari.
--------------------------------------------------------------------------------
Hér er stutt lýsing á þér og högum þínum í síðasta lífi:
Þú varst byltingarkenndur persónuleiki. Þú hvattir til breytinga á öllum sviðum - í pólítík, viðskiptum, trúarbrögðum sem og heimilishaldi. Gætir hafa verið foringi manna og/eða kvenna.
--------------------------------------------------------------------------------
Hvaða skilaboð færir fyrra líf þér til þessarar jarðvistar?
Þér er ætlað að leysa vandamál í sambandi við mengun umhverfisins og í sambandi við endurvinnslu hverskonar, eyðingu spilliefna, geislavirkni og hlutum af svipuðum meiði.
--------------------------------------------------------------------------------
Er þetta ekki að rifjast upp núna? - Farnist þér vel?
HASH(0x83ab0f4)
Thu ert Gugga, djammari og fjolskylduvera ef u ert
ekki nu thega olett tha er thad a leidinni...


Which Icelandic girl are u?
brought to you by Quizilla
Hei hei kíkið á prófið!! hehehe
Ja hérna hér, sælt veri bloggið mitt, loxins, ég hef ekki bloggað í 10 daga og var búinað gleyma passwordinu og öllu, tók langan tíma fyrir ólétta konu með léttan alzheimer að komast aftur inn... hjúkkit!!! Mikið búið að gerast því tölvan mín er búin að vera lokuð alla páskana, þökk sé helv... Íslandsíma + Tal = Og Vodaphone, held ég verzli við Símann í framtíðinni þó óþokkafyrirtæki sé! Sys er búin að koma að heimsækja mig í sveitina en er farin aftur sniff sniff... Sys hefur eina bestu og jákvæðustu orku í heimi og er líka svaka dugleg, love her! Við brölluðum ýmislegt saman, átum súkkulaðikökur, drukkum rauðvín og horfðum á alla nýjustu seríuna af Friends! That´s life!!! Annars er ég að fara í 2. foreldrafræðslufundinn á morgun ... úff vona að fólkið hafi gleymt mér ;) síðan síðast. Svo átti moi að fara í blóðprufu í morgun en Guggan og Mr. Jones sváfu yfir sig, kannski sem betur fer! Meira blóð fyrir morgundaginn. Annars erum við Mr. Jones búin að njóta páskanna til hins ýtrasta, fá gesti, fara út að borða, horfa á video, borða páskaegg og sofa takmarkað reyndar... Malli er orðinn mjög fyrirferðarmikill og finnst gaman að skoða sig um inn í bumbunni. Vona að allir hafi notið friðar og fagnaðar á páskunum, blez í bili !

föstudagur, apríl 11, 2003

Jæja dagurinn í dag er búinn að vera mjög furðulegur svo ekki sé meira sagt... Vaknaði um 11 leitið við að Mr. Jones sat á rúminu og horfði á mig, leið ekki vel því ég svaf MJÖG vel í nótt s.s krumpuð með slef niður á kodda. Morgunmatur hjá mér var Cocoapuffs (hálfgerður barnamatur óléttukonunar), eftir Cocoapuffs-æðið mikla fórum við á fyrsta foreldranámskeiðið og viti menn, það munaði p...hári að Guggan hefði steinrotast... því yfirlið var á næsta leiti, OMG, this was EMBARRISING. Var svaka kúl þegar ég mætti á svæðið með kúluna út í loftið og voða stolt. Þegar líða tekur á tímann og ljósmóðirin byrjar að tala um fæðingarferlið, útvíkkun og svoleiðis, hvítna ég og byrja að finna fyrir kulda í hausnum, reyni að halda kúlinu fá mér vatn og og glotti til Mr. Jones en allt kemur fyrir ekki, náði að fara fram og þykjast fara á klósettið en sá stjörnur og hvítt ljós og allt!! Labba fram í andyri eins og löðursveitt vofa þegar konan í móttökunni stoppar mig af og býður mér að setjast bak við í Lazý-boy stól með vatnsglas í annarri og peysuna mína í hinni. Hún náði í Mr. Jones og þá jafnaði ég mig strax. Greyið ljósan var í sjokki, kom fram og spurði mig hvort ég væri ekki búin að borða og sofa nóg og hvort ég væri viðkvæm fyrir útvíkkunum og deyfingum... en það er neflilega fyndnast við þetta, ég er ekkert viðkvæm fyrir neinum svona lýsingum, fannst þetta einmitt þvert á móti mjög áhugaverð lýsing hjá henni um útvíkkun, hvernig barnið þrýsti sér út eins og það væri að klæða sig í þrönga rúllukragapeysu, Hvað er svona hrikalegt við það? Eitthvað með óléttu sálina mína að gera líklega! En vonandi gengur betur næst, segi ég nú bara. Eftir þetta ævintýri sendi Mr. Jones mig í rúmið og ég lagði mig, skil samt ekki af hverju því mér leið rosa vel og fór svo að vinna í svaka fílíng og kom heim og fékk mér kjúklingabát og cola! Annars er mér mikið huxað til litlu sys þegar þessi dagur er á enda, því við tvær erum líklega seinheppnustu og mestu hrakfallabálkar sem fyrirfinnast á Jörðinni okkar. Nema ég er náttúrlega svaka heppin að eiga hana sem einu og beztu sys í heimi enda lendum við oft í fyndnum aðstæðum og hlægjum ógurlega að hvorri annarri :) :)

You are a dark writer. A fierce and loyal follower
of Poe and the other gothic authors, you LOVE
to instill a sense of revulsion and somewhat
fear in your readers. You love to poke their
brains with logic dealing with the darker side
of the human mind and character. Truly
surprising and a true individual, you'll do
ANYTHING to create a scene. :)


What's YOUR Writing Style?
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Lóan er komin.... og þá kemur sólin og sumarið!! Ég er búin að reyna að máta öll sumarfötin mín svona 5 sinnum en ... það verður víst lítið um magaboli og mínípils í sumar hjá Gugggunni, enda held ég að sumartískan eigi að vera mjög víð í sumar ....NOT! Annars held ég að málið sé að vera bara nógu djarfur í magabolunum, og leyfa bumbunni bara að njóta sín!. 8 vikur eftir af leigusamningi bumbubúans... en hann fær að sjálfsögðu undanþágu ef hann er ekki tilbúinn, annars vona ég að ég þurfi ekki að fara að leita að holóttum vegum, hlaupa upp og niður kirkjutröppurnar, innbyrgða laxerolíu og drekka Tónik í lítravís!!! Ég trúi því að bumbubúinn verði skynsamur og stundvís eins og mamma sín :) Dagurinn í dag er búinn að vera lengi að líða, aldrei þessu vant, enda er ég búin að afreka miklu, taka hótelbókhaldið í gegn, endurnýja happdrættismiðann, skella strípum í tengdó, þrífa allt hátt og lágt, kaupa mér armband, fylgjast með fréttum og sækja barnarúmið hans "Malla". Ég tek það fram að ég vaknaði kl.10! Eitt besta móment dagsins var þegar gamall Doors diskur Mr. Jones komst í leitirnar og fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna vííííí... g n.. s r.. í a n!!!!!

mánudagur, apríl 07, 2003

abbb abbb abbb!! það er sko ekki rigning á Akureyri!!! Veðurpían eitthvað að fara á mis!
vá hvað ég er þreytt... sé allt með störu!!! spúgíí, þetta er líklega fylgifiskur meðgöngunar!

Mæli ekki með...


göngutúrum upp brekku !


tilbúnum mat úr matvöruverzlunum !


að vakna kl.sex og fatta að maður á enga mjólk !


að koma heim úr vinnuni og fatta að maður setti í þvottavél sl. föstudag !


...s.s dagurinn minn í hnotskurn!


sunnudagur, apríl 06, 2003


What Flavour Are You? Tomato is what I taste like.Tomato is what I taste like.


I taste like nothing, except a tomato. I'm sometimes sweet and sometimes tart; sometimes juicy, sometimes crisp. The roles of a tomato are many and varied. I am an exception to all the rules. What Flavour Are You?
uuhhhhhhhhhuuuuuuuuhuhu ... sakna Öldu minnar!! Aldos kom í heimsókn til mín um helgina, þessi elska, við erum búnar að lifa á Kjúklinga- og steikarbátum og hafa það gott og gaman. Horfðum reyndar á tvær misgóðar videomyndir á föstudaginn en "deep pool" bjargaði sjónvarpsglápinu það kvöldið og í gær var stuðkvöld þar sem við tókum myndir af fyndnu dóti sem ég á plastgleraugum, gúmmítönnum og.fl. Aldrei að vita nema ég birti nokkrar skemmtilegar myndir síðar af þessum gjörning okkar :) Annars er helgin búinað vera æði, alltaf gaman að fá stuðbolta í heimsókn sérstaklega þegar maður er kúlukona, malli stækkar og stækkar og við Aldos komumst að því að hann er hvorki rokkari né skoppari!! hann er líklega diskógæi :)

fimmtudagur, apríl 03, 2003


What Sort of Hat Are You? I am a Crash Helmet.I am a Crash Helmet.


I may appear to take risks, but they're always carefully calculated to be not actually that risky. My primary concern is for my safety and comfort, and that of those around me; only when that's taken care of do I go after fun. What Sort of Hat Are You?
Jæja er rétt að jafna mig eftir helgina, líður eins og ég hafi verið að rónast um helgina, en nei, ekki var það svo gott..... var andvaka útaf 17ára rónapakki víðsvegar af landinu!!! Annars finnst mér aðþað ætti að banna Söngvakeppni af þessu tagi og alls konar fjölmennum framhaldsskólahátíðum og hafa eina góða ferð í lok skólaársins til Thailands, Arizona eða Ástralíu þar sem þetta pakk er sett á eyju og á að bjarga sér eins og í Survivor, þar geta þau legið í moldinni og látið snáka og tígrisdýr sleikja á sér tærnar, fyrir mér! Held að unglingar/fólk framtíðarinnar hefði gott af smá árennslu og sjálsbjargarviðleitnislærdómi, því unglingar í dag eru upp til hópa AUMINGJAR!!!

þriðjudagur, apríl 01, 2003


You are: SALT! Outgoing, funny and a great friend
to have around.


---What fast food condiment are you?---
brought to you by Quizilla

mánudagur, mars 31, 2003

Nú er ég aldeilis hneiksluð!!! Til að gefa ykkur smá yfirsýn hvað var að gerast hér á Ak. um helgina, Dirty Weekend In Akureyri!!!Eru djammpíurnar gjörsamlega að missa vitið??? Eða er ég svona halló og gamaldags!?

sunnudagur, mars 30, 2003

Er búina að vera í ljótu þreytunni í dag... sofnaði kl.6 í morgun, lætin hérna úti mynntu helst á ástandið í Írak, miklu verra en verslunarmannahelgi, og maður náttúrlega súpersensitive þessa daganna, ætla að leggja fram kvörtun í bæjarstjórn á morgun, ekki fleiri unglingafyllerí og hátíðir fyrir utan mitt hús í framtíðinni, hvaða flokkur skyldi bjóða best??? maður verður að nota hótanir fyrir kosningar, ekki satt? Annars fór ég vinnuna þrátt fyrir lítinn svefn og hinn víðfrægi nafnlausi matarklúbbur hittist áðan, og maturinn var guðdómlegur! húrra fyrir Hörpu :) "Malli" er búinnað vera í sama ástandi og mamma sín í dag og vill fara að sofa og það helst í gær!!! Guten nacht!! und schalfen sie bitte gut alles nacht Herr Klein!
hehehe fyndið!!!
breast implants!
YOU HAVE BREAST IMPLANTS!!!


what's YOUR deepest secret?
brought to you by Quizilla

Hafið þið einhverntíma prófað að blanda saman diet kóki og sykurkóki???? Geðveikt GOTT!!! :)
Annars er allt búið að vera á öðrum endanum hérna á Akureyrinni, aflitaðir unglingar á hverju götuhorni og lætin og fyleríið eftir því, að sjálfsögðu vegna Söngvakeppni Framhaldsskólanna, það mætti hreinlega halda að verzlunarmannahelgin væri að byrja. Mér er meinílla við að sjá reykjandi, slafrandi, ofurölvi unglinga sem vita varla hvað þeir heita, var að hugsa um að setja upp kakóbás hérna fyrir utan hjá mér og "dauða"tjald eins og þetta var kallað í gamla daga til að krakkarnir gætu látið renna af sér. Aldrei var ég svona sem unglingur....var mun þroskaðri...VONA 'EG!!!!
Jæjhhaa... var að klára að mála svefnherbergið, hreiðurhvötin alveg að gera útaf við mig. Mr. Jones fór á smá tjútt með vinunum, á meðan nýt ég mín hér heima í vídíjó, frostpinnum og bumbuklappi... hehehehe ... er alveg í fögnuði yfir ástandinu :Þ

fimmtudagur, mars 27, 2003

Kveð í dag, ....var í þessum rituðu orðum að gleipa tyggjó.... ætli það sé í lagi??? :)
Fyndið hvað óléttar konur geta verið nojaðar, ætli það sé í lagi að....borða osta......nota sjampó.....horfa á hryllingsmyndir.....klappa kisum....stunda kynlíf.....drekka orkudrykki??? enda ekki skrýtið, alltaf verið að koma með nýjar og nýjar sannanir um hvað er hættulegt og hvað ekki, er ekki eitthvað annað fyrir þetta fólk að gera en að hræða óléttar konur!!! Spyrjum Kára?

miðvikudagur, mars 26, 2003

Jæja núna fyrst fer maður að verða óléttur fyrir alvöru, samdrættir,svefnleysi og flóðhestafílingur. Ég er hrædd við að fara í bað, sund og út að labba, er hrædd um að "malli" fari að skjótast út!! Það er ómöglegt fyrir mig að klippa tásluneglur og reima skó. Auglýsi hér með eftir Au-pair sem klippir táslur, reimir skó og hughreystir óléttar konur með hormónasveiflur á háu stigi!!!

þriðjudagur, mars 25, 2003


Your Heart is Red


What Color is Your Heart?
brought to you by Quizilla
bitch
your bitch.


What swear word are you?
brought to you by Quizilla
Þegar danskir karlmenn fara til vinnu slá þeir konur sínar í rassinn og þegar þeir koma heim aftur titrar hann ennþá. Ekki vegna þess þeir slái of fast, né að danskar konur séu svona feitar - heldur vegna þess að vinnudagurinn er svo stuttur..... :)

sunnudagur, mars 23, 2003

Halló heimur!!! Spennan eykst fyrir Óskarinn, hver verður kvikmynd ársins? hver verður í ljótasta búningnum? Hver í flottasta? Hver verður með mislukkuðustu ræðuna? Mun Kata-Zeta skjóta krakkanum út uppá sviði? Eða mun einhver crazy talíbani eyðileggja óskarinn, stela honum og misþyrma?? Ég spái Gangs of N.Y og L.O.T.R The TwoTowers mestum sigrum, Martin Scorsese er minn kall og að sjálfsögðu Peter Jackson. Bíðum spennt því stundin mun renna upp...... -and the Oscar goes to........ ???

laugardagur, mars 22, 2003

Mér finnst að:

....Halldór Ásgrímsson ætti að fá Símann til að finna OsamarBinLaden og SaddamHussein, það er ábyggilega ekkert annað fyrirtæki sem stundar eins miklar persónunjósnir (og það um sitt eigið starfsfólk!!!). Yfirmenn Símans væru búnir að finna þá báða innan sólarhrings og koma þeim fyrir kattarnef niðrí Landsímahúsi "...and the War is over, God Bless America, yeah right!"


....Bush ætti að hætta að leika píslarvott og viðurkenna sína bókstafstrú, hann er ekki "sá eini, sem var fenginn til að útrýma öllu íllu"!!!


....öll dýrinn í skóginum ættu að vera vinir, hvort sem þeir eru skáeygðir, bandaríkjamenn, talíbanar, íslenskir stjórnmálamenn, yfirmenn Símanns, svartir, indjánar, sundlaugaverðir, gyðingar, Rússar, kettir, frægir, ríkir, feitir, dvergar, gluggaþvottamenn, hreindýr eða bara ég og þú!!!!


Verið góð við hvert annað og brosið framan í heiminn þó ljótur sé!!

Jæja bara einn dagur í ÓSkar... ég er algjör óskarsnörd (ef svo mætti kalla)!! Ég bíð spennt allann daginn og horfi alla nóttina með tannstöngla við augnlokin. Áður fyrr þegar ég var ekki með stöð2 gerði ég mig heimakominn hjá e-hv, ótrúlega uppáþrengjandi...það eru neflilega óvenjufáir sem horfa á Óskarinn, allavega enginn sem ég þekki :( Dagurinn í dag er búinn að líða á ljóshraða, ekkert búið að gerast nema ég varð mér til mikillar skammar á Glerártorgi í dag kl.17.30, brjálað að gera náttúrlega, allir að versla fyrir helgina og svona, og inngangurinn í Glerártorg er mjög spes, einhver hringhurð sem gengur í hringi, svipað og í Perlunni en á endunum er svona glersamskeyti e-hvernveginn og ég gjörsamlega labba beint á glerið með þvílíkum látum og brussuskap. Sem betur fer var Mr. Jones með mér og veið gátum hlegið að þessu eins og vitleysingar... OMG ef ég hefði verið ein!!!

Föstudagarnir í heimi óléttunar verða sífellt skemmtilegri, er farinn að prófa mig áfram í óáfengum kokteilum og ávaxtasalötum sem er "thingið" mitt þessa daganna jammmmíí!!


UPPSKRIFTIR AF KOKTEILUM FYRIR Þ'A SEM VILJA VERA EDR'U OG 'OL'ETTIR UM HELGINA!! ;) :


Glasabarnakokteill


10 cl Chiquita gulrótarsítrussafi


4 cl Chiquita berjarsafi


Skvetta af sítrónusafa og grenadine


Hristið með ísmolum.


Hormónabomban


9 cl Chiquita passíuávaxtasafi


5 cl Chiquita berjasafi


fyllt upp með Apple Cider


Hristið með ísmolum.


Uppáhald Bumbubúans


10 cl Chiquita passíuávaxtasafi


4 cl chiquita sólarkokteill


fyllt upp með Apple Cider


Hristið með ísmolum


Einn fyrir svefninn


7 cl Chiquita appelsínusafi


4 cl Chiquita ananassafi


3 cl Mangósafi


Hristið með ísmolum

Hafið góða helgi öllsömul!


miðvikudagur, mars 19, 2003

Ég fór á Videoleigunna áðan og leigði mér myndinna Iris... ekki nóg með það, ég er búin að grenja og grenja og grenja og er að upplifa mikið vökvatap eftir að horfa á þessa mynd, ég myndi ekki beint segja að þetta sé sorleg mynd svona eftir á, heldur skelfilega falleg mynd sem kreistir hressilega úr tárakirtlunum! *sniff* Hormónasveiflur /eða/ Guggan orðin súpervæmin???!!
You're Carrie!
You're Carrie! A professed sexual anthropologist
and a slightly neurotic columnist, you've got
notorious weaknesses for expensive footwear,
men who tend to be utterly wrong for you, and
cosmopolitans. It's all about the Manolos,
baby!


What 'Sex and the City' Character Are you?
brought to you by Quizilla

þriðjudagur, mars 18, 2003

Hefur ykkur einhverntíma liðið eins og lífið ykkar sé auglýsing... svona happy-auglýsing, t.d eins og símaauglýsingarnar eða matarauglýsingarnar þar sem allt er perfectismo, allir brosandi og rosa happy og allt svo hreint og fínt... mér er búin að líða svona í allann dag. Ég var sú týpa að hlægja að Brúðkaupsþættinum J'A og finnast símaauglýsingarnar hallærislegra en nokkuð annað. Ég veit ekki hvort þetta séu hormónarnir að tala eða ég að verða KLIKK. Var að skoða líf mitt í gegnum sjónauka í dag og sá gifta, hamingjusama og ólétta konu! Vildi bara láta ykkur vita að kannski er ég að verða KLIKK :)

sunnudagur, mars 16, 2003

10 things i hate about Akureyri:

1. Helv**** rúnturinn... hvað er að fólki sem nennir að rúnta hring eftir hring(í kringum 3 hús) og flauta í takt við lagið "I Can´t get no satisfaction"!!!!!! (People - get a life)!

2. Djammið á Akureyri er VONLAUST!! það er hvergi til skemmtistaður - allsstaðar leiðistaðir! Þið djammrottur, það er vonlaust að koma í helgarferð til Ak. og búast við "feitu" djammi - ekki nema kannski með rétta fólkinu! ;)

3. Þynnkumatur ófáanlegur!! það er nákvæmlega engin góður súr þynnkumatsölustaður, kjúklingastaðurinn er vibbi og Pengs subbulegur(hef ég heyrt - hef allavega ekki lyst...) - það besta sem hægt er að fá er Dominos sem fær 5 í einkunn hjá mér varðandi þynnkumat!!!

4. Brynjuís... hef aldrei fattað hvað er svona gott við hann!!!!

5. Greifapizza!!! HVAÐ ER AÐ!!!

6. Á sunnudögum er alveinsgott að sofa bara... Draugabær! í mestalagi 5 þunnir HA-ingar að skríða úr bænum...

7. Psssshhhtt eigendur Akureyrar þ.e. Greifinn og Hótel kea döööööööö!

8. Vantar verslanir og fjölbreytni og fólk að sjálfsögðu!

9. VMA.... af hverju kalla þeir þetta ekki bara 3faga skólinn á AK. þú getur bara útskrifast af bíliðnabraut, smíðabraut og blikksmiðabraut... eða eitthv. álíka!! algjörlega ónýtur skóli!!

10. Göngugatan er ca 50 skref... þvílíka GÖNGUgatan!

10 things i love about Akureyri

1. Mr. Jones er frá Ak... hvað get ég sagt.... algjör GULLMOLI ;)

2. Maturinn á Friðriki V

3. Tengdaforeldrar mínir eru ÆÐI

4. Sólin & sumarið

5. Einn besti staðurinn í heiminum til að ala upp barn!

6. Vatnið án hitaveitufýlu og kísils

7. Ódýrara en í h-borginni.

8. Kirkjutröppurnar :)

9. Flugvöllurinn flottari en í RVK.

10. Hlíðarfjallið.

Úff hvað manni er heitt þegar maður er óléttur, ég hef alltaf verið mikil kuldakelling en núna er sumar hjá mér enda veðrið á Ak. eftir því 10 stiga hiti og sólskin. Mar fer bara að skella sér í bikiníið og bros fram í heiminn ;)

laugardagur, mars 15, 2003

Jæja komin úr nafla alheimsins og aftur til Ak. Komst að því í gær, mér til mikillar skelfingar að heimilið mitt hafi breyst í félagsmiðstöð fyrir homma, systkyni þeirra og 16 ára aflitaðra unglinga sem nenna að hanga með þeim... OMG... er að fríka út á þessu!!! Ég og Mr. Jones erum farin að þrá heimili okkar eins og það var, þar sem maður gat stripplast um og farið í bað með opið fram og svoleiðs... vona að ég losni við ÞETTA fyrir næstu helgi, annars held ég tónleika hérna næstu helgi og þá mun ég syngja... H'ATT!!! Hormónaspengja nr.2. :)

fimmtudagur, mars 13, 2003

ég er svo dööööööööööööööö núna... er að huxa um að sofa aðeins í hausinn minn áður en ég tjái mig .......