laugardagur, mars 22, 2003

Mér finnst að:

....Halldór Ásgrímsson ætti að fá Símann til að finna OsamarBinLaden og SaddamHussein, það er ábyggilega ekkert annað fyrirtæki sem stundar eins miklar persónunjósnir (og það um sitt eigið starfsfólk!!!). Yfirmenn Símans væru búnir að finna þá báða innan sólarhrings og koma þeim fyrir kattarnef niðrí Landsímahúsi "...and the War is over, God Bless America, yeah right!"


....Bush ætti að hætta að leika píslarvott og viðurkenna sína bókstafstrú, hann er ekki "sá eini, sem var fenginn til að útrýma öllu íllu"!!!


....öll dýrinn í skóginum ættu að vera vinir, hvort sem þeir eru skáeygðir, bandaríkjamenn, talíbanar, íslenskir stjórnmálamenn, yfirmenn Símanns, svartir, indjánar, sundlaugaverðir, gyðingar, Rússar, kettir, frægir, ríkir, feitir, dvergar, gluggaþvottamenn, hreindýr eða bara ég og þú!!!!


Verið góð við hvert annað og brosið framan í heiminn þó ljótur sé!!

Jæja bara einn dagur í ÓSkar... ég er algjör óskarsnörd (ef svo mætti kalla)!! Ég bíð spennt allann daginn og horfi alla nóttina með tannstöngla við augnlokin. Áður fyrr þegar ég var ekki með stöð2 gerði ég mig heimakominn hjá e-hv, ótrúlega uppáþrengjandi...það eru neflilega óvenjufáir sem horfa á Óskarinn, allavega enginn sem ég þekki :( Dagurinn í dag er búinn að líða á ljóshraða, ekkert búið að gerast nema ég varð mér til mikillar skammar á Glerártorgi í dag kl.17.30, brjálað að gera náttúrlega, allir að versla fyrir helgina og svona, og inngangurinn í Glerártorg er mjög spes, einhver hringhurð sem gengur í hringi, svipað og í Perlunni en á endunum er svona glersamskeyti e-hvernveginn og ég gjörsamlega labba beint á glerið með þvílíkum látum og brussuskap. Sem betur fer var Mr. Jones með mér og veið gátum hlegið að þessu eins og vitleysingar... OMG ef ég hefði verið ein!!!

Föstudagarnir í heimi óléttunar verða sífellt skemmtilegri, er farinn að prófa mig áfram í óáfengum kokteilum og ávaxtasalötum sem er "thingið" mitt þessa daganna jammmmíí!!


UPPSKRIFTIR AF KOKTEILUM FYRIR Þ'A SEM VILJA VERA EDR'U OG 'OL'ETTIR UM HELGINA!! ;) :


Glasabarnakokteill


10 cl Chiquita gulrótarsítrussafi


4 cl Chiquita berjarsafi


Skvetta af sítrónusafa og grenadine


Hristið með ísmolum.


Hormónabomban


9 cl Chiquita passíuávaxtasafi


5 cl Chiquita berjasafi


fyllt upp með Apple Cider


Hristið með ísmolum.


Uppáhald Bumbubúans


10 cl Chiquita passíuávaxtasafi


4 cl chiquita sólarkokteill


fyllt upp með Apple Cider


Hristið með ísmolum


Einn fyrir svefninn


7 cl Chiquita appelsínusafi


4 cl Chiquita ananassafi


3 cl Mangósafi


Hristið með ísmolum

Hafið góða helgi öllsömul!


miðvikudagur, mars 19, 2003

Ég fór á Videoleigunna áðan og leigði mér myndinna Iris... ekki nóg með það, ég er búin að grenja og grenja og grenja og er að upplifa mikið vökvatap eftir að horfa á þessa mynd, ég myndi ekki beint segja að þetta sé sorleg mynd svona eftir á, heldur skelfilega falleg mynd sem kreistir hressilega úr tárakirtlunum! *sniff* Hormónasveiflur /eða/ Guggan orðin súpervæmin???!!
You're Carrie!
You're Carrie! A professed sexual anthropologist
and a slightly neurotic columnist, you've got
notorious weaknesses for expensive footwear,
men who tend to be utterly wrong for you, and
cosmopolitans. It's all about the Manolos,
baby!


What 'Sex and the City' Character Are you?
brought to you by Quizilla

þriðjudagur, mars 18, 2003

Hefur ykkur einhverntíma liðið eins og lífið ykkar sé auglýsing... svona happy-auglýsing, t.d eins og símaauglýsingarnar eða matarauglýsingarnar þar sem allt er perfectismo, allir brosandi og rosa happy og allt svo hreint og fínt... mér er búin að líða svona í allann dag. Ég var sú týpa að hlægja að Brúðkaupsþættinum J'A og finnast símaauglýsingarnar hallærislegra en nokkuð annað. Ég veit ekki hvort þetta séu hormónarnir að tala eða ég að verða KLIKK. Var að skoða líf mitt í gegnum sjónauka í dag og sá gifta, hamingjusama og ólétta konu! Vildi bara láta ykkur vita að kannski er ég að verða KLIKK :)

sunnudagur, mars 16, 2003

10 things i hate about Akureyri:

1. Helv**** rúnturinn... hvað er að fólki sem nennir að rúnta hring eftir hring(í kringum 3 hús) og flauta í takt við lagið "I Can´t get no satisfaction"!!!!!! (People - get a life)!

2. Djammið á Akureyri er VONLAUST!! það er hvergi til skemmtistaður - allsstaðar leiðistaðir! Þið djammrottur, það er vonlaust að koma í helgarferð til Ak. og búast við "feitu" djammi - ekki nema kannski með rétta fólkinu! ;)

3. Þynnkumatur ófáanlegur!! það er nákvæmlega engin góður súr þynnkumatsölustaður, kjúklingastaðurinn er vibbi og Pengs subbulegur(hef ég heyrt - hef allavega ekki lyst...) - það besta sem hægt er að fá er Dominos sem fær 5 í einkunn hjá mér varðandi þynnkumat!!!

4. Brynjuís... hef aldrei fattað hvað er svona gott við hann!!!!

5. Greifapizza!!! HVAÐ ER AÐ!!!

6. Á sunnudögum er alveinsgott að sofa bara... Draugabær! í mestalagi 5 þunnir HA-ingar að skríða úr bænum...

7. Psssshhhtt eigendur Akureyrar þ.e. Greifinn og Hótel kea döööööööö!

8. Vantar verslanir og fjölbreytni og fólk að sjálfsögðu!

9. VMA.... af hverju kalla þeir þetta ekki bara 3faga skólinn á AK. þú getur bara útskrifast af bíliðnabraut, smíðabraut og blikksmiðabraut... eða eitthv. álíka!! algjörlega ónýtur skóli!!

10. Göngugatan er ca 50 skref... þvílíka GÖNGUgatan!

10 things i love about Akureyri

1. Mr. Jones er frá Ak... hvað get ég sagt.... algjör GULLMOLI ;)

2. Maturinn á Friðriki V

3. Tengdaforeldrar mínir eru ÆÐI

4. Sólin & sumarið

5. Einn besti staðurinn í heiminum til að ala upp barn!

6. Vatnið án hitaveitufýlu og kísils

7. Ódýrara en í h-borginni.

8. Kirkjutröppurnar :)

9. Flugvöllurinn flottari en í RVK.

10. Hlíðarfjallið.

Úff hvað manni er heitt þegar maður er óléttur, ég hef alltaf verið mikil kuldakelling en núna er sumar hjá mér enda veðrið á Ak. eftir því 10 stiga hiti og sólskin. Mar fer bara að skella sér í bikiníið og bros fram í heiminn ;)