þriðjudagur, september 06, 2005
Feitur fyrirlestur
Án gríns... gekk ég í gegnum eld og brennistein í morgun. Í mínum augum er það að halda fyrirlestur fyrir 40 óþekkt andlit. Ég þóttist vera vel undirbúin enda var að læra og undirbúa herlegheitin til 2 síðustu nótt. Þetta var AuLahRoLluR út í eitt. Þurrkur í munni, málstífla og þar að auki gleymdi ég að kynna sjálfa mig og hálfa rannsóknarritgerðina sem ég hyggst skila í lok september. Ég hef aldrei áður fengið jafn mikinn svima og ógleði yfir sjálfri mér en sem betur fer var fólk þarna í svipuðum sporum og ég, þannig að maður átti nokkra að :]
Eftir þessa meðferð fengum við hópefli sem er námskeið í hvernig hægt er að kynnast fólki á mjög skjótann hátt og það gekk alveg eftir uppskriftinni ég kynntist 4 yndislegum sálum sem er s.s hópurinn minn frábæri og reyndar er allt fólkið hérna alveg súperfínt.
Klukkan 1700 var svo skólasetning hérna á Hólum og staðarleiðsögn sem ég hefði ekki viljað missa af. Þessi staður er magnaður; náttúran, skógurinn, húsin, minjarnar, kirkjan, kirkjugaðurinn hefur meira að segja þvílíkan sjarma. Ég hef einmitt útsýni úr herberginu mínu út að kirkjugarðinum, það er ólýsanlega flott. Ég tek kannski mynd af því og set inn á langþreyttu væntanlegu myndasíðuna sem ég er alltaf að tala um og geri ekkert í!
Annars er alveg magnaðasta við þennann stað er að maður sefur svoooo vel hérna að ég er að hugsa um að skríða uppí og hvíla mig til 800 í fyrramálið, góða nótt litlu kríli!

mánudagur, september 05, 2005
Hólar
Jæja gott fólk þá er maður kominn í Hjaltardalinn á Hóla og hér eru enginn vettlingatök, manni er bókstaflega kastað út í hina dýpstu laug og verði manni að góðu. En þó ekki í alslæmri meiningu sjáið til því þetta er jú allt lærdómur og harka út í eitt. Alltaf gaman á Hólum :)
Staffapartýið var haldið í gær og þar var gleði og gaman. Ferðin hófst með Hvalaskoðun þar sem allir voru að leita að hvölum en þó með sultarkvalir því enginn hafði borðað almennilega og ferðin tók sinn tíma, 2 tímar takk fyrir í kulda og sulti. En Salka tók við sem er svolítið freaky veitingastaður, vond sósa og léleg þjónusta. Svo var maður hitaður upp í Jarðböðunum í Mývatnssveit og eftir það tók við snakk, singstar og mismiklir drykkir á hvern kjaft. Þvílíkar djammdrottningar þessar skvísur sem hafa verið að vinna hjá okkur. Heiða mín og Eydís mín, þið voruð ekki öfundsverðar í morgun en þvílíkt gaman í gær!! Takk fyrir frábært kvöld!
Leibbi og Helena áttu einnig góða spretti og mér hlakkar ekkert smá til brúðkaupsins :) Adda SingStar átti góðan söng og sigraði held ég alla hvort sem um var að ræða Marilyn Manson eða Westlife. Þetta var dúndurgaman.
Jæja núna verð ég að fara að stappa í mig stálinu og fara að læra fyrir morgundaginn, af því ég á að vera með 3 mín. ræðu um verkefnið mitt fyrir 20 manna bekk, OMG!!!
Gugga´s out.

föstudagur, september 02, 2005
Fjallgönguskór og frístundavarasalvi
Ég fór í bæjarferð í dag, aldrei þessu vant keypti ég 2 hluti sem ég hef aldrei keypt áður:
1)fjallgönguskó sem ég verð að eiga fyrir skólann minn sem hefst á mánudaginn JEIIII! Ég var álíka græn á að versla svona skó eins og ég væri ef ég þyrfti að versla smokk! Kallinn sem afgreiddi mig lét mig máta fullt af allskonar furðulegum skóm sem mér fannst allir jafn ljótir. En svo endaði ég á að kaupa mér eina sem voru svona í dömulegri kantinum en samt engir Manolos. En það á víst að vera hægt að ganga fjöll og fyrnindi í þessum bomsum og það er víst það sem máli skiptir. Kallinn byrjaði svo upp úr þurru að tala um vaselin.... ég bað hann vinsamlega um að endurtaka allt í sambandi við vaselinið þar sem ég var upptekin af nýju dömulegu fjallgönguskónum og þá á það víst að vera þjóðráð ef maður er staddur einhversstaðar upp á fjalli að bera á skóna vaselín ef maður gleymir rándýru fjallaskóolíunni heima, en hvað ætti maður eiginlega að vera að gera upp á fjalli með vaselinkrukku?
2)frístundavarasalvi!! Málið er að ég er búin að þjást af varaþurrki frá því ég man eftir mér og ætlaði nú ærlega að kaupa einhvern háþróaðan geimvarasalva sem myndi gera einhver kraftaverk. Konan í apótekinu mældi með frístundavarasalva, svo núna maka ég á mig frístundavarasalva í frístundum!!

föstudagur, ágúst 26, 2005
Systir mín er hætt að blogga í augnablikinu og hefur ekki bloggað neitt í allt sumar, fúlt!! Hún á alveg snilldar gullkorn þar inni og hafur ýmislegt til málanna að leggja... vona að hún fari að blogga, kellingin!!
Eitt uppáhaldsbloggið mitt þessa stundina er Eplamaukið hennar Heiðu, kíkið endilega á það enda skemmtileg stelpa þar á ferð.
Ég verð að setja upp myndasíðu!!!

fimmtudagur, ágúst 25, 2005
miðvikudagur, ágúst 17, 2005
Mrs. Robinson er komin á klakann
Í dag var ég einkaguide Yolöndu um Norðurland, fórum við m.a. á Goðafoss eða "Góðafoss" eins og Yola vildi kalla hann og átum piparpúka og harðfisk, svo fórum við og týndum fífur sem Yolu fannst mjög falleg blóm (það þarf ekki stóra hluti til að gleðja túristahjarta). Við pissuðum út í guðsgrænni náttúrunni (kamarinn sem við ætluðum á var ólýsandi ógeðslegur)og að lokum týndum við ber, þegar berjatýnslan hófst og berin hurfu hvert af öðru ofan í mig, horfði Yola á mig og sagði alvarlega - I hope no one have pissed on them -! og ég náttúrlega skellihló eins og alvöru víkingur sem hafði aldrei gert annað en að drekka piss og éta kjamma.

Cammie vinkona mín er mætt á landið án Justins, skiljanlega, hún veit líklega hvernig íslenski kvenpeningurinn lætur í hvert skipti sem glamúrgæi frá Hollywood stígur fæti á klakann. Vona bara að skvísan líti við hjá mér!!
Ég mæli með að allir prófi að borða piparpúka og drekka bjór með!!! þá kemur afar spes bragð ;)

laugardagur, ágúst 13, 2005
Djö... getur sumt fólk verið leiðilegt!!
Ég er sem betur fer afar lánsöm og þekki eiginlega undantekningalaust bara skemmtilegar og góðar sálir... en það vill stundum til að það gægist leiðilegt, vanþakklátt og biturt fólk inn um gluggann hjá manni og sem betur fer þarf maður ekki að hleypa því inn og oftast stoppar þetta fólk stutt við hjá manni á lífsleiðinni hvort sem það eru kunningjar, skólafélagar, vinnufélagar eða bara hreinlega bláókunnugt fólk. Ég er sem betur fer núna laus við allar þessar bitru og döpru sálir =)

þriðjudagur, ágúst 09, 2005
Dagar Nætur Ár

LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Annríkið er sannarlega mikið hjá ljóninu. Verslun og viðskipti, málaleitanir og samningar ganga vel í dag. Þú ert í banastuði.
Þetta er nokkuð skemmtileg stjörnuspá og á bara nokkuð vel við mig fyrir daginn í dag:
Annríki já vinna: 10 - 24 í gær, 6 - 12 í dag og það var barasta banastuð í vinnunni.
Verslun og viðskipti: Keypti 2 spúna á verði 1 og veiðileyfi á góðum prís.
Málaleitnanir og samningar: Samdi við Leibba að fá lánaðan bílinn hans fyrir bensíni á bílinn.
Stuð: :D

Ísland - aftur til fortíðar
Ef bensínið hættir ekki að hækka... verðum við komin á hross eftir 10 ár!
Ef Rúv hættir ekki að ræna af okkur peningum og sýna leiðilega dagskrá eins og hestaíþróttir og fótbolta á hverju kvöldi hættir fólk að horfa á sjónvarp og grípur til gömlu skruddunar og fer loks að lesa.
Súrmatur er inn!
Lopapeysur og skinnklæði eru að tröllríða landanum og teygir anganna út í hinn stóra heim.
Náttúruböð eru vinsæl og það virðist sem margir eru hættir að nota sápu.
..eftir hverju bíðum við skríðum aftur inn í torfkofanna og höfum kósíkvöld.

laugardagur, ágúst 06, 2005
Fiskinn minn namminamminamm

Við Mr. Jones fórum í veiðiferð saman í gær í Hörgánna og þó ég segji sjálf frá hef ég marga fjöruna sopið en þarna drukknaði ég næstum enda vorum við að veiða í straumi lögði fljóti og á hálir steinar við hvert fótmál þannig að ég gusaðist til og frá og bókstaflega átti sundkunnáttu minni að þakka að ég er enn meðal vor. En veiðisögurnar eru sjaldan langt undan enda missti ég 3 væna fiska en veiddi eina bleikju sem mældist um 3 pund. Ég vil taka það fram að ég er ekki mikil villimanneskja í mér og finnst sárt að drepa fiska enda læt ég Jonna alfarið um að lurka úr þeim lífið... en ég get verið hræðilega tapsár ef ég missi fiska og get verið fúl í nokkra klukkutíma. Jonni greyið reynir að kenna mér en auðvitað er það honum að kenna að ég missi fiskanna, hann er ekki nógu snöggur með háfinn eða segir mér að gera eitthvað sem veldur því að fiskurinn hefur vinninginn, lífi sínu feginn. Ég held að ég sé búin að horfa á alltof mikið af hjartnæmum Disney myndum til að geta staðið í svona fiskeríi.
Hátíð samkynhneigðra er gengin í garð og missti ég því miður af hátíðarhöldunum. Sjaldan lýgur almannarómur og það virðist sem allir séu í fögnuði yfir þessum viðburði fyrir sunnan. Enjoy people!! Sakna þess að sjá ekki skrúðgönguna enda hefur hún alltaf verið hápunktur laugavegsins í ágústmánuði. Þegar ég var hárgreiðslugúrú fyrir sunnan og vann á laugaveginum fór maður ávallt eftir vinnu og fagnaði frelsinu og fólkinu sem er samkynhneigt og nýtur sín. Til hamingju allir!
Auk þess eiga Dalvíkingar fiskidag sinn og situr fólk nú að snæðingi og talið er að fólk hafi hámað í sig 11 tonn af fiski í dag og geri aðrir betur!
Sjóarar og samkynhneigðir, this is your day!!!

föstudagur, ágúst 05, 2005
30
Jæja mínir kæru áhangendur, þá er maður loksins komin á þriðja tuginn og þarf að passa sig að halda kúlinu en samt í senn vera "grown up" ef þið skiljið! Það er mikill munur milli 29 0g 30 skal ég segja ykkkur. Hugarfarslega... ekki beint áþreyfanlega. Ég tók ekki eftir fleiri hrukkum eða meiri appelsínuhúð frekar hvernig ég passa mig að segja ekki "oh my god", "shit" og "geðveikt vírað" og slíkt sem hæfir að sjálfsögðu ekki háttvirtri þrítugri giftri konu með barn að segja!!
En annars er það helst að frétta að Ítalíuferðin var náttúrlega frábær og mjög vel lukkuð fyrir utan ýmis slys sem alltaf fylgja okkur Edditu þegar við erum að ferðast saman. Fyrsta sem gerðist var að Edda sem tók ferðina mjög alvarlega menningalega séð og ætlaði sko aldeilis að borða og drekka Ítalska menningu á 1 viku pantaði sér óvart nautagarnasúpu sem var ekki sérdeilis girnileg að við misstum eiginlega báðar matarlystina það sem eftir var ferð.
Við fórum einnig í SPA og létum dekra við okkur í "stone therpy" og andlitsbaði, nema hvað að eins og flestir vita eru ítalir ekkert mikið fyrir að tala eða skilja ensku þá enduðum við með sitthvorn nuddarann í sitthvoru horninu á húsinu og nuddarinn minn skildi ekkert í ensku og ég fékk hvorki handlæði né sturtuklefa og var gegnsósa í olíu og hárið á mér eins og ég hafi verið dreginn upp úr ræsinu einhverstaðar á Rimini. Ég ráfaði um húsið sem var á þremur hæðum í leit að Eddunni en hún var hvergi sjáanleg þannig að ég sótti fötin mín og fann opnar sturtur í einhverju herbergi og fór þar og naut sturtunar þangað til kviknaði á einhverjum heilasellum og einhver tenging myndaðist við það sem stóð á hurðinni á sturtuherberginu og eitthvað sem ég hafði séð úr "The godfather". Donnes = Karlmenn.... OMG!! Mín skrúfaði fyrir sturtuna í snatri með sápuna í hausnum og í föt og út, hitti Eddu sem var búin að hringja í mig eins og vitlaus manneskja og við út, Edda olíuborin eftir enga sturtuferð og ég með sjampó lekandi niður á bak og rauð eins og karfi. Æði!!!
Síðast en ekki síst versluðum við auðvitað föt og svoleiðis og Edda fékk þá snilldar hugmynd að kaupa balsamikedik og koma með heim fyrir ættingja og vini þar sem balsamikið á þessum slóðum er það besta sem fyrirfinnst í heiminum við keyptum slatta og vöfðum þessu inn í öll fínu fötin sem keyptum en viti menn þegar við komum heim angaði taskan mín af ballalykt og fötin og allt útötuð í besta balsamikediki í heiminum JEIIII...
Þessi ferð til Montecatini var samt frábær í alla staði og lærði maður eitt og eitt orð í ítölsku og tók slatta af myndum.
Ég vona að ég muni einhverntíma hafa þolinmæði til að setja upp myndasíðu...

fimmtudagur, júní 30, 2005
mánudagur, júní 27, 2005
Skóli vs. Spánn
Jæja þá, í dag fékk ég bréf um að ég gæti hafið nám í Hólaskóla í haust. Mín viðbrögð voru kitlstingur í magann. Svoldið spúgí en kannski ekki af því Spánarferðin okkar Mr. Jones átti að vera frá 6. - 10. sept. en þá er akkúrat kennsla fyrir nemendur fjarnámsins. Þannig að nú verð ég að velja og hafna. Ef ég er tvístígandi... hvar er áhuginn!!?................................ Ég ætla í skólann!!! JEiiiii. Jóndi bóndi ætlar í skólann. Annars er ekkert að frétta, bara bloggið mitt er í tætlum.

sunnudagur, júní 26, 2005
!biggabú!
Haldiði að mín hafi ekki endað á skrallinu með Harpos í gær og svona líka blátt áfram stuð alla nóttina. Bogga slóst í hópinn með okkur og Unnsa punnsa og fl. og fl. David Beckham wannaby var á svæðinu og tailenskur flugmaður sem hélt drykkjunum gangandi, kúkurinn var líka svæðinu, Dóra og Doddi dönsuðu af sér skónna, Erik mr. USA hneykslaðist á að konur sem ættu börn væru að skralla karlmannslausar á nóttunni og hélt mikla ræðu um siðgæði hjónabanda sem okkur Hörpu fannst auðvitað drepfyndið. Ég endaði í leigubíl kl 5 í morgun kófdrukkin og þráði ekkert heitar en svefn og mat. Ísskápurinn tómur þannig að mjólkurglas varð fyrir valinu. Harpa aftur á móti endaði í brjáluðu eftirpartýi með 3 hönkum og var bara nokkuð ánægð. Bogga endaði líka í öðru partýi á hinum enda bæjarins með 2 pörum. Djammkvótinn er búinn í bili enda þynnkan slæm verri verst. En þetta kvöld var magnað og gleymist seint, sama má segja um líðan mína núna...
Haldiði að mín hafi ekki endað á skrallinu með Harpos í gær og svona líka blátt áfram stuð alla nóttina. Bogga slóst í hópinn með okkur og Unnsa punnsa og fl. og fl. David Beckham wannaby var á svæðinu og tailenskur flugmaður sem hélt drykkjunum gangandi, kúkurinn var líka svæðinu
föstudagur, júní 24, 2005
miðvikudagur, júní 22, 2005
þriðjudagur, júní 21, 2005
Hólískólí
Jæja þá er mín búin að skrá sig í skóla í Hólaskóla. NotaBene, ég ætla ekki að gerast bóndi. Núna er Hólaskóli háskóli en ekki bændaskóli svo að ekkert misskilist. Ferðamálabraut varð fyrir valinu svo að það verður í nógu að snúast í haust m.a. kúrs í gangstígagerð og leiðsögukúrs! Jeeiii...

laugardagur, júní 18, 2005
Á skrallið næstu helgi?
Ó já.. mín ætlar sko aldeilis að sletta úr klaufunum næstu helgi og þá aðallega með klaufunum Hörpu og Sif. Þó líði ár og öld og þá sjaldan að maður lyfti sér upp þá hafnar maður seint slíkum partýboðum. Harpan mín er að flytja til Köben og auðvitað þarf kveðjupartý með pompi og pragt. Annars segji ég bara gleðilegan þjóðhátíðardag, Guð blessi Ísland!

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)