miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Vandræðalegt
Ég veit að þetta hljómar fáránlega en, vinarhópurinn okkar fór út að borða um helgina og einn tvífari Justins Timberlake var í hópnum. Eins og allir vita er ég einlægur aðdáandi Justins og þá sérstaklega vegna útlitsins. Maðurinn var alveg eins og Justin og meira að segja taktarnir og röddin var eins. Maður var alltaf að glápa eitthvað!!! Mjög vandræðalegt svo ekki sé meira sagt.

mánudagur, febrúar 20, 2006

Ofmetin Akureyri II edition

Eftir að hafa búið í 4 ár á Akureyri má segja að aðlögun mín við Akureyri sé enn ekki lokið. Það er margt hér ansi spánskt fyrir sjónum manneskju sem er fædd og uppalin í Reykjavíkinni, capitalé Islandia.
Annað hvort á fólk eftir að hata mig eða elska eftir þessa færslu, sjáum til...

Greifapizza
Hef aldrei skilið hvað er svona geggjað við Greifapizzu. "Bestu pizzur í heimi" segja Norðanmenn. Þessar pizzur eru hvorki góðar né vondar. Annað hvort eru Akureyringar bragðlaukablindir, trúír sínum heimamönnum eða hafa ekki smakkað margar pizzur í heiminum. Ég ráðlegg Akureyringum nær og fjær að leggja leið sína á Eldsmiðjupizzu eða Pizza di´Oliver á Ítalíu, þá vita allir hvað ég meina.

Brynjuís
"Besti ís í heimi" fyrir smekk Akureyringa. Í sannleika sagt hef ég gefið Brynjuís 7 tækifæri og ég verð bara að segja að Álfheimaísinn er ekkert verri!

Rúnturinn
Ein blóðugasta sjón á Akureyri. Allir á stífbónuðum köggunum að rúnta sama hringinn (í kringum fimm hús), flautandi, gefandi í, með Skítamóral í botni í útvarpstækjunum og étandi Brynjuís. HVAÐ ER AÐ!!! Það er ekki eins og það séu ekki kaffihús, videóleigur eða bíó á svæðinu!? Get lives u people.

Klíkurnar
Akureyringar eru ekki svo frábrugðir Thaílendingum, hópast saman í einhverjum gengjum sem fáir útvaldir komast í tæri við. "Sportgengið", "Fráskildu eiginkonugengið", "djammgengið", "Kjarnaskógargengið", "Greifagengið" o.s.frv. Það er eins og það þurfi að minna þetta fólk á að Akureyri sé hluti af Íslandi og allir í skóginum eigi að vera vinir.

Sjallinn
Sjúskaðasti skemmtistaður á Íslandi. 7 kvennasalerni, stífluð, klósettpappírlaus, án læsingu, útæld eða útskitin. Ég veit ekki hvernig stelpur sem djamma á sjallanum fara að því að skvetta úr skvísunum?? Annars er þessi staður mjög hentugur fyrir fólk sem hefur gaman að skemmta sér með fólki 18 ára og yngri, bara muna eftir að birgja sig upp af pampers.

Bílarnir
Akureyringar líta á bílanna sína sem gæludýr. Ef þú ert á leið inn í bæinn á skítugum bíl verður þú pottþétt litinn hornauga. Hvort sem þú ert á Fiat Uno eða Bmw, farðu á fyrstu þvotta/bensínstöð sem þú sérð og þvoðu bílinn, ekki bara þvo, heldur tjöruhreinsa, sápubóna, pússa stuðara, glugga og felgur og síðast en ekki síst splæstu ylmspjald á spegilinn þá ertu alveg "save".

Ég vil taka fram að þrátt fyrir þessa dökku bletti eru ýmsir jákvæðir punktar við Akureyri m.a. þá eru flestir Akureyringar alveg fínir, náttúran er virkilega falleg, bókasafnið er gott, Friðrik V er bestur, sundlaugin þægileg, skemmtileg skautahöll, fín kaffihús (þó að djammið sé afleitt) og öll rólegheitin kærkomin.

mánudagur, febrúar 13, 2006

Fjallagrös og fílabein

Loksins er ég komin með áhugamál eftir 30 ára lífsleið. Keilir var ólýsanlegur í alla staði og þessarri göngu mun ég seint gleyma. Við fengum allar tegundir af íslensku veðri, rigningu, snjó, slyddu, sól, þoku, skýjun, logn og rok. Það var eins og maður hafi komist í einhverja vímu þegar maður náði toppnum... og svo rúlluðum við hálfpartinn niður í algjöru hláturskasti. Ég fann 2 hjartalaga steina sem ég gaf hjörtunum mínum hér heima (smá væmið, en samt...!) Núna er allavega 1 fjall komið á listann og fleiri munu fylgja í kjölfarið, that´s a promise! Aint no mountain high enough....

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Höfuðborgaferð n° 2

Nú er komið að því! Gangan á Keili fer fram á laugadaginn, ég er nú orðin smá stressuð, enda þolið ekki alveg upp á sitt besta núna!!! Lífstíllinn hjá minni hefur þó breyst til muna, hætt að reykja og drekka kaffi & gos og nú labbar maður bara og hreyfir sig eins og fólk gerir... enda finnur maður spikið renna af sér og mun hreinni andardrátt. Það er náttúrlega allt klikkað í skólanum. Var að koma frá bókasafninu þar sem allt fólkið er farið að þekkja mann og flestir þar vita að ég er að læra ferðamálafræði því ég geri ekki annað en að spyrja og trufla starfsfólkið þarna, en í dag var ég að leita að sögubókum og gömlum þjóðsögum fyrir Keilisverkefnið og starfskonan sem ég talaði við spurði hvort ég væri hætt í ferðamálafræði og byrjuð í sögu?! Fólkið á bókasafninu er sko minnugt og með munninn fyrir neðan nefið þegar það kemur að upplýsingaöflun. Amtbókasafnið er best, svona eins og annað heimili!

föstudagur, febrúar 03, 2006

Nú er komið að höfuðborgarferðinni og er mikið búið að hlakka til ferðarinnar enda skólinn búinn að taka sinn toll undanfarnar 2 vikur. Thunder-partý hjá okkur Sys sem klikka sjaldan (þau klikka aðallega ef við höldum þau fyrir norðan, I wonder why...!) Mr. Jones ætlar með og svo að sjálfsögðu Lilli sem heldur stuðinu uppi á leiðinni í bílnum með sína útgáfu af Krummi svaf í klettagjá og öðrum ferskum og frísklegum lögum. Ætli Svanur sé að vinna á Kaffibarnum? Ég er búin að hanna nýjan drykk sem fæst á Kaffibarnum og heitir "pot í auga" og fæst hann á hálfvirði... mæli með honum. Bona petit!!

þriðjudagur, janúar 31, 2006


Spiderman er flottastur!!!

laugardagur, janúar 28, 2006

Nostalgía
Eins og flestir sem til mín þekkja vita að ég er algjör alæta á tónlist og hlusta ég því stundum á Létt 96,7 og það er skemmst frá því að segja að rétt í þessu hlaut ég 15 mínútna nostalsíuvímu, þar sem 4 lög voru spiluð í röð sem minntu mig á gamla tíma sem innihéldu gömul vandamál, ástarsorgir o.þ.h. Ég brosti út í annað og fann hversu lítilvægleg þessi vandamál myndu virðast í sömu sporum í dag... sem þýðir aðeins eitt... ég er orðin gömul og þroskuð sál, gott mál!

Fordómar og Steluþjófar...
Ég verð að viðurkenna að eftir að tölvunni minni og peningaveski var stolið á Spáni hef ég gríðarlega fordóma gagnvart ólöglegum innflytjendum Marokkóbúa á Spáni. Tölvunni minni er saknað sárt og er það ástæðan fyrir því að allar mínar myndir og skólaverkefni eru glötuð FOREVER.... Kúkalabbar!!!

föstudagur, janúar 27, 2006

Svart og sykurlaust

Er ekki alveg að höndla myrkrið, dauðsé eftir því að hafa farið frá Spáni. Ef einhver veit um lampa á góðum prís fyrir mig svo ég geti lýst upp sveitina mína látið mig vita hið fyrsta svo ég flytji ekki til Spánar fyrir næsta janúar.
Jonni minn farinn til Spánar í viku, svo eina ljósið í sveitinni er hann Lilli minn sem er náttúrlega algjört ljós. Við ætlum að hafa dekurkvöld í kvöld og kveikja á kertum, borða popp og horfa á Idolið... gott plan fyrir svartsjáandi sveitakellingu og lítið ljós.

miðvikudagur, desember 28, 2005

Hola senjores y senjoritas!

Það er aldeilis skemmtilegt á Spáni og jólin mun afslappaðri en á Klakanum. Á Aðfangadag var maður bara í Elche að skoða skó og borða Tapas í afslöppuðu andrúmslofti og svo borðuðum við seinna um kvöldið hjá Palla op Yolu, Calla mares, snigla, lambakjet og paellas. Saknaði svolítið rauðvínssósunni hans pabba en þetta var samt besta mál því mikið rauðvín var í boði. Veitingastaðurinn hans Antonio Banderas er svo áfangastaður eftir áramót enda ekki svo auðvelt að komast að á stjörnustöðunum hér úti. Á jóladag fórum við svo í svaka veislu hjá eigendum Puma hér á Spáni og það var mikil upplifun... Þvílík villa, þjónar, öryggisverðir, stór sundlaug og 2 skemmtistaðir inn á heimilinu! Mjög gaman að vera prinsessa eitt kvöld. Núna liggur leiðin til Elche í pumabúðina góðu og þar verður verslað!!!

Feliz Navidad öllsömul og hafið það gott í kuldanum (muy frio Islandia)

Senjorita Gugga Cortes.

fimmtudagur, desember 15, 2005

sól og jól

Það eru 4 dagar í Spán og mikið hlakkar mér til að losna úr þessu gráa og grugguga umhverfi og komast í hlýtt og skemmtilegt loftslag. Ég skal veðja að ég á eftir að flytja til Spánar og læra spænsku og að dansa Flamingodans eftir nokkur ár.... sundlaug í garðinum, Siesta og Fiesta, sandurinn og ströndin, allt ódýrt, tapas, skemmtilegt fólk og engir íslendingar, nema þeim sem ég vil bjóða til mín. Gæti lífið verið betra??

mánudagur, desember 12, 2005

Ég kveð skólann minn með söknuði og þakklæti, prófin eru á enda! Síðasta prófið var erfitt... enda tölvan að stríða mér. 2 kennarar í skólanum eru búnir að veita mér áfallahjálp, af því ég hélt að svörin mín hefðu ekki skilað sér sem skildi. Missti hálftíma af próftímanum í stríði við tölvuna. Hræðilega stressandi! En ég er fegin að vera búin og tími til komin að njóta jólanna. 7 dagar í afmæli Sys og 8 dagar í ferðina til Spánar, jeiiii!!!

laugardagur, desember 10, 2005

Jóla-skóla-jól

Þessi jól eru farin að snúast alltof mikið um skólann. Próflærdómur og lestur heilu bókanna, blöðrur á fingrum eftir mikla glósutíð og slabb og slen. Ég hlakka svoooo til að geta leyft mér að komast í alvöru jólaskap, þó ég sé búin að stelast til að skrifa nokkur jólakort, spila og syngja jólalög, og pakka inn fáeinum pökkum. Ég er ótrúlegur jólaálfur og ætla sko að setja skóinn út í glugga á sunnudaginn og ath, hvort gamli, góði Stekkjastaur muni ekki örugglega eftir mér í próftíðinni...
Eftir próf á mánudaginn verður sko brunað til Akureyrar og fengið sér jólastemmingu beint í æð. Svo að sjálfsögðu fer jólastuðið ekki fram hjá manni þegar maður lítur við suður á föstudaginn næsta og kíkir á kaffibarinn í smá jólaglögg, skál fyrir því!
Chugger

miðvikudagur, desember 07, 2005

Flugvöllinn burt!




Ég var að ræða við kollega minn um staðsetningu innanlandsflugvallarins, við erum á andverðri skoðun og mér er heitt í hamsi og við erum bæði jafn sannfærð okkari skoðun, en það sem meira er, það er svo erfitt að rökræða og rífast í gegnum tölvu. Ég vildi stundum að ég ætti boxpúða!
Umhverfið og ég
Próf í Umhverfisfræði á morgun og ég er byrjuð að fá prófhroll. Varúðarreglur, Staðardagskrá 21, Mengunarbótareglan, Nytjagreiðslureglan og Rovanemi yfirlýsingin eru í mínum huga þessa stundina og kemst ekki annað að ... nema kannski að flokka mjólkurfernur og sorpúrgang.

Spánn eftir 13 daga!!!!!Tanny

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Ég er hálfnuð með umhverfisstjórnunarritgerðina mína og hún er GóÐ svo ég segi sjálf frá!!! hún bara verður að vera góð. Annars vildi ég bara segja Britney er best!!


Ég vil svo hvetja ykkur tvær sem lesa bloggið mitt að hjálpa mér með MSNið er alveg búin að klúðra nýju uppsetningunni!!!

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

..hvort sem þið trúið því eða ekki þá er Kambódía og Víetnam orðnir vinsælir áfangastaðir ferðamanna!
Rafmagnstækin stela jólunum

Ryksugan mín sprakk í morgun. Það kviknaði í sjónvarpinu fyrir síðustu jól. Ísskápurinn minn er byrjaður að emja (sérstaklega að næturlagi). Það sprungu 2 perur í gær, báðar inn á baðherbergi! Útijólaljósaserían ætlaði að stinga af í rokinu í gærkvöldi.

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Blautir draumar...

Í nótt dreymdi ég að ég væri að leika í kókauglýsingu sem súmóglímukappi, en í rauninni í draumnum var ég spiiiikfeitur kínverskur súmóglímukappi og fékk mér fullt af girnilegum kínverskum mat(vorrúllum, núðlum, kjúkling, rækjur o.fl o.fl.). Það var rosalega erfitt að borða og ég náði ekki einu sinni að halda á prjónunum af því puttarnir voru svo feitir að ég skóflaði bara upp í mig hrísgrjónum með lúkunum og drekk kók með... en það var verst þegar að súmóglímunni kom þá þurfti ég að fara í svona g-streng eins og þessir vesalings menn eru í og hann var svo þröngur að hann hvarf eiginlega bara inn í skinnið..... hver myndi annars vilja láta súmóglímukappa leika í kókauglýsingu!!!!

Ráðning draums: Guggan er hætt að drekka kók og borða chinise... það er fitandi!

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Ég og Mr. Jones alveg að missa okkur í tjúttinu, síðustu helgi.(fleiri myndir á myndasíðu!)