laugardagur, febrúar 22, 2003
jæja ég er búin að flétta upp orðinu kynþokki í íslensku orðabókinni.... þar stendur... kynþokki = kynferðisbundnar eigindir í útliti og/eða fasi sem orka örvandi á einstaklinga hins kynsins, sem segir okkur ýmislegt um Frikka Weis... en nóg um það. Dagurinn í dag er búin að vera kvöl í heimi óléttunar, mér leið ekki mjög "kynþokkafull" í morgunsárið staulandi um eins og gamalmenni sem kemst ekki skóna sína, bakverkir og kvart og kvein í allann dag. Það er ýmislegt lagt á tilvonandi feður þessa heims ;) en Mr. Jones er skilningsríkur og þolinmóður að vanda og er búinn að dekra við mig í allann dag. Sys er líka búin að fá sinn skammt, hellti mér yfir hana og lýsti óléttunni sem hræðilegri upplifun þar sem manni líður eins og hreyfihömluðum einstaklingi sem rétt nær að komast ferða sinna á klóstið. En ég get sagt ykkur það þrátt fyrir "smá" bakverki og pirring er þetta dásamleg tilfinning sem maður á að njóta :) Það eru 3 mánuðir eftir !! og tíminn líður hratt á gervihnattaöld :) Hafið góða helgi englabossar nær og fjær og látið kynþokkann geisla sem fyrr! :)
hmmm ... jæja fólkið mitt, bloggleiði dauðans er búin að liggja á herðum mér undanfarna daga enda hef ég ekki mikið sniðugt fram að færa. Enn 1 föstudagurinn í heimi óléttunar, þar sem aðalstuðið felst í að horfa á djúpu lauginna, strjúka bumbuna og borða poppkorn, sem er að vísu alls ekkert slæmt því maður vaknar gjörsamlega ferskur, frískur og kynþokkafullur í morgunsárið... eins og vinur okkar Frikki Weishappel orðaði það svo skemmtilega í útvarpinu í dag, það sem honum finnst a.m.k kynþokkafullt við konur er ólétta, ferskleiki og barnavagn :) Hver varð annars fyrir valinu á kynþokkafyllstu konu landsins??? veit það einhver?? Hvað er kynþokki? Látið mig vita hvað finnst ykkur?
þriðjudagur, febrúar 18, 2003
10 Staðreyndir:
1. Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma.
2. Menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar.
3. Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag.
4. Krossfiskar hafa engan heila.
5. Fiðrildi eru með braglaukana á fótunum.
6. Rétthent fólk lifir að meðaltali 9 árum lengur en örvhentir.
7. Ísbirnir eru örvhentir.
8. Ef þú mydir öskra í 8 ár 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla.
9. Ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndast gas sem jafngildir krafti atómsprengju.
10. Sterkasti vöðvin í líkamanum er tungan.
(Hmmmmmmmmm........)
1. Ef þú lemur hausnum við vegg brennir þú 150 hitaeiningum á klukkutíma.
2. Menn og höfrungar eru einu tegundirnar sem stunda kynlíf sér til skemmtunar.
3. Sum ljón eðla sig 50 sinnum á dag.
4. Krossfiskar hafa engan heila.
5. Fiðrildi eru með braglaukana á fótunum.
6. Rétthent fólk lifir að meðaltali 9 árum lengur en örvhentir.
7. Ísbirnir eru örvhentir.
8. Ef þú mydir öskra í 8 ár 7 mánuði og 6 daga myndir þú búa til næga orku til að hita 1 kaffibolla.
9. Ef þú myndir reka við stanslaust í 6 ár 9 mánuði myndast gas sem jafngildir krafti atómsprengju.
10. Sterkasti vöðvin í líkamanum er tungan.
(Hmmmmmmmmm........)
vá... ég var að komast að því ... mér til mikillar skelfingar að ég er orðin gömul, og meira að segja svo gömul að ég get líklega ekki djammað lengur allavega ekki hér á Ak. Skoðið þessar myndir og segið mér hver er meðalaldurinn af þessu pakki!! Það eru kannski 2 á þessum myndum sem gæti verið á svip. aldri og ég. Þarf að upplifa Reykjavíkurnætur, eða er kannski svipað viðhorfs þar.... bara aflitaðir og bólugrafnir unglingar í Quarashibolum að digga´ða!!!!??
sunnudagur, febrúar 16, 2003
You're Debra Messing...you're fresh, new and you
love to hang out with your Will and Grace
Cast...You start the trends and never apologize
for being you....you go girl!
What actress are you?
brought to you by Quizilla
Jæja þá er helgin að verða búin og mánudagurinn á næstu grösum... Eyddi Eurovisionkvöldinu í góðu yfirlæti í sumarbústað rétt fyrir utan Ak. með fjölskylduvænu vinunum og Freddi kokkur eldaði kínamat sem var svo sterkur að við sátum með klaka í glösum og gátum vart talað yfir keppninni en aftur á móti komst ég að því að sterkur matur virkar eins og 10 grænir frostpinnar á börn því grislingarnir 4 voru í essinu sínu allt kvöldið ;) Ég hélt ekki með neinu lagi og var bara sátt við Birgittuna, æ ég hef aldrei verið mikið Eurovisionfrík, mér er nokkuð sama um þetta, nema áður var þetta kjörið tilefni til að djamma og djúsa, en ekki núna, ó nei. "Malli" er 24vikna í dag :) og gerir reglulega æfingar fyrir múttu sína. Núna ætlum við "malli" að hlamma okkur fyrir framan TV og horfa á Villta folann og bíða eftir "Daddycool", því þessi elska er óstöðvandi í vinnunni !
föstudagur, febrúar 14, 2003
You are a Mango...luscious, exotic and sinfully
sweet...you inspire passion and lust in
everyone you meet...
What Kind of Fruit Are You?
brought to you by Quizilla
You're bubbly! Life doesn't get you down, or if it
does, not for long! If your friends need
cheering up, you're right there for them!
A different quiz, what strange type of person are you?
brought to you by Quizilla
Listasafnið á Akureyri... Aftökur og útrýmingar, ef einhver hefur áhuga, svona rétt fyrir Valentínusardaginn !**
Svei mér þá Valladagur á morgun... hvað er hægt að gera til að gleðja ástina sína??? Mér vantar alla þessa femenísku rómantík í mig.. ég er eins og "Siggi smiður" fer í blómaval og kaupi rauðar rósir eða eitthvað álíka, mig langar svo að gera eitthvað virkilega sérstakt og rómantískt, líka af því ég var svo glötuð á bóndadaginn. Kannski að mér detti eitthvað í hug á morgun, þá er ég í fríi og get planað, ef þið hafið hugmyndir látið mig vita!!!! öll ráð vel þegin! Á meðan verið góð við hvort annað annars kemur Valintínus og bítir ykkur í rassinn hehehe !! Kveðja Guggz Valentínusar-vandræða-gemlingur
miðvikudagur, febrúar 12, 2003
Rosalega er allt lengi að gerast á þessu bloggi, var að framkvæma brjálaðar breytingar á síðunni í gær en ekkert komið upp... Fylgdist með fréttum í dag í fyrsta skipti í langan tíma bara til að minna mig á að fylgjast aldrei með fréttum!! ástandið í heiminum er hrikalegt með öllum þessum stríðsofsóknum og brjáluðum forsetum og framamönnum sem reyna að finna bara einhverja ástæðu til að byrja að *stríða*. Ég er alveg hrikalegur friðarsinni, þannig að ég verð mjög reið þegar ég fylgist með framvindu mála í þessum heimi. Svo ekki sér nú talað um heimastjórnina okkar!! Vegaframkvæmdir!!!!! Hvað er AÐ! Æjæj nú hætti ég þessu bulli og bambli um eitthvað sem enginn fær við ráðið, og þá sérstaklega ekki ég. Það er annað sem fer virkilega í taugarnar á mér það er þegar fólk masar og þrasar um eitthvað í marga klukkutíma, sem enginn getur gert neitt í og er byrjað að ákveða jafnvel hvað er best og hvað ekki án þess að vera inní málunum... þess vegna fylgist ég aldrei með fréttum af því maður getur aldrei verið nógu mikið inn í öllum málum þessa heims til að geta gert eitthvað í þessu... allt í lagi að hafa skoðun en samt vita takmörkin fyrir henni :) Pólitík er ljót TÍK eins og góður vinur minn sagði forðum! Á Akureyri er rjómablíða og snjórinn að hverfa. Í kvöld ætla ég að slaka og hvíla þreyttar lappir, Guggan mælir með fótabaði, kertaljósum og Björk á fóninn. Þema kvöldsins ráðið og nú er ég farin...........
þriðjudagur, febrúar 11, 2003
Halló heimur!! Fór í mæðraskoðun í morgunsárið og komst að því til mikillar gleði að mallinn minn hefur stækkað og mælist nú yfir meðallagi og ljósan voða sátt og segir að malli er í essinu sínu í bumbunni minni... enda alltaf svaka stuð þar á bæ. Við fengum líka að heyra hjartsláttinn. Ég er alveg að springa úr gleði og hamingju :) En eitt sem veldur mér áhyggjum það er húsdraugurinn, vaknaði í nótt með ljósið kveikt inn í svefnherbergi OMG, ég ætlaði aldrei að sofna og áðan þegar við vorum að borða kvöldmatinn slokknaði allt í einu inn í svefnherbergi.... afhverju geta draugar ekki frekar verið einhversstaðar annarsstaðar en inn í svefnherberginu.. finnst það pínu creepy, hann mætti alveg sýna listir sýnar lokaður inn á klósetti eða e-h. Annars er dagurinn tíðindalítill að vanda. Ég segi bara drottinn blessi heimilið og húsdrauginn... sem vonandi fer að koma sér út!
mánudagur, febrúar 10, 2003
...ekki stunda vínberja-og gulrótarát saman!!!! Sat fyrir framan sjónvarpið í gær og hakkaði í mig vínber og gulrætur til skiptis (skrítið snakk ! en hey ég er ólétt!). Gat ekki sofið í nótt fyrir hugsunum um að annað hvort væri maginn á mér að springa eða ég að verð óð með allar mínar pólitísku hugsunum um hvernig ætti að stjórna Akureyri, maður þarf að vera virkilega kvalinn til að fara á slíkt hugarflug!!
...ekki leigja Ash Wednesday á vidíjóleigunni !! góðir leikarar en þvílíkt bull og sjúklega langdregin ræma sem á heima í ruslinu!
...ekki vakna við vekjaraklukkuna... það er ekki til neins :)
...ekki fara út í rokið!!!!
...ekki leigja Ash Wednesday á vidíjóleigunni !! góðir leikarar en þvílíkt bull og sjúklega langdregin ræma sem á heima í ruslinu!
...ekki vakna við vekjaraklukkuna... það er ekki til neins :)
...ekki fara út í rokið!!!!
sunnudagur, febrúar 09, 2003
Sunnudagur, dagur letinar... "ísát og faðma koddann sinn" er þema dagsins í dag og ég nýt þess til hins ýtrasta... er að bíða eftir spennandi símtali frá Aldos, hún er að fara á blind-date í dag og ég er svo forvitin, mig langar svo að hringja en er svo hrædd um að trufla hehehheee... Hún hlítur að láta dreifbýlisfólkið vita! Annars er tíðindalítið héðan frá Ak. en halló veðurpían er eitthvað að fara á mis... því hér er sól og blíða og meiraaðsegja hiti. En aldrei er varinn of mikill og gott að vera vel klæddur eins og var tönglast á manni þegar ég var lítil, þá var ég send út með 2 húfur og snjógalla og 2 ullasokka og moonboots og lambhúshettu og læti þannig að maður labbaði um eins og lítil mörgæs um allt Breiðholtið. En kveð að sinni... þið sem reykið hættið núna!! og kíkið á þetta!!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)