fimmtudagur, mars 27, 2003

Kveð í dag, ....var í þessum rituðu orðum að gleipa tyggjó.... ætli það sé í lagi??? :)
Fyndið hvað óléttar konur geta verið nojaðar, ætli það sé í lagi að....borða osta......nota sjampó.....horfa á hryllingsmyndir.....klappa kisum....stunda kynlíf.....drekka orkudrykki??? enda ekki skrýtið, alltaf verið að koma með nýjar og nýjar sannanir um hvað er hættulegt og hvað ekki, er ekki eitthvað annað fyrir þetta fólk að gera en að hræða óléttar konur!!! Spyrjum Kára?

miðvikudagur, mars 26, 2003

Jæja núna fyrst fer maður að verða óléttur fyrir alvöru, samdrættir,svefnleysi og flóðhestafílingur. Ég er hrædd við að fara í bað, sund og út að labba, er hrædd um að "malli" fari að skjótast út!! Það er ómöglegt fyrir mig að klippa tásluneglur og reima skó. Auglýsi hér með eftir Au-pair sem klippir táslur, reimir skó og hughreystir óléttar konur með hormónasveiflur á háu stigi!!!

þriðjudagur, mars 25, 2003


Your Heart is Red


What Color is Your Heart?
brought to you by Quizilla
bitch
your bitch.


What swear word are you?
brought to you by Quizilla
Þegar danskir karlmenn fara til vinnu slá þeir konur sínar í rassinn og þegar þeir koma heim aftur titrar hann ennþá. Ekki vegna þess þeir slái of fast, né að danskar konur séu svona feitar - heldur vegna þess að vinnudagurinn er svo stuttur..... :)

sunnudagur, mars 23, 2003

Halló heimur!!! Spennan eykst fyrir Óskarinn, hver verður kvikmynd ársins? hver verður í ljótasta búningnum? Hver í flottasta? Hver verður með mislukkuðustu ræðuna? Mun Kata-Zeta skjóta krakkanum út uppá sviði? Eða mun einhver crazy talíbani eyðileggja óskarinn, stela honum og misþyrma?? Ég spái Gangs of N.Y og L.O.T.R The TwoTowers mestum sigrum, Martin Scorsese er minn kall og að sjálfsögðu Peter Jackson. Bíðum spennt því stundin mun renna upp...... -and the Oscar goes to........ ???

laugardagur, mars 22, 2003

Mér finnst að:

....Halldór Ásgrímsson ætti að fá Símann til að finna OsamarBinLaden og SaddamHussein, það er ábyggilega ekkert annað fyrirtæki sem stundar eins miklar persónunjósnir (og það um sitt eigið starfsfólk!!!). Yfirmenn Símans væru búnir að finna þá báða innan sólarhrings og koma þeim fyrir kattarnef niðrí Landsímahúsi "...and the War is over, God Bless America, yeah right!"


....Bush ætti að hætta að leika píslarvott og viðurkenna sína bókstafstrú, hann er ekki "sá eini, sem var fenginn til að útrýma öllu íllu"!!!


....öll dýrinn í skóginum ættu að vera vinir, hvort sem þeir eru skáeygðir, bandaríkjamenn, talíbanar, íslenskir stjórnmálamenn, yfirmenn Símanns, svartir, indjánar, sundlaugaverðir, gyðingar, Rússar, kettir, frægir, ríkir, feitir, dvergar, gluggaþvottamenn, hreindýr eða bara ég og þú!!!!


Verið góð við hvert annað og brosið framan í heiminn þó ljótur sé!!

Jæja bara einn dagur í ÓSkar... ég er algjör óskarsnörd (ef svo mætti kalla)!! Ég bíð spennt allann daginn og horfi alla nóttina með tannstöngla við augnlokin. Áður fyrr þegar ég var ekki með stöð2 gerði ég mig heimakominn hjá e-hv, ótrúlega uppáþrengjandi...það eru neflilega óvenjufáir sem horfa á Óskarinn, allavega enginn sem ég þekki :( Dagurinn í dag er búinn að líða á ljóshraða, ekkert búið að gerast nema ég varð mér til mikillar skammar á Glerártorgi í dag kl.17.30, brjálað að gera náttúrlega, allir að versla fyrir helgina og svona, og inngangurinn í Glerártorg er mjög spes, einhver hringhurð sem gengur í hringi, svipað og í Perlunni en á endunum er svona glersamskeyti e-hvernveginn og ég gjörsamlega labba beint á glerið með þvílíkum látum og brussuskap. Sem betur fer var Mr. Jones með mér og veið gátum hlegið að þessu eins og vitleysingar... OMG ef ég hefði verið ein!!!

Föstudagarnir í heimi óléttunar verða sífellt skemmtilegri, er farinn að prófa mig áfram í óáfengum kokteilum og ávaxtasalötum sem er "thingið" mitt þessa daganna jammmmíí!!


UPPSKRIFTIR AF KOKTEILUM FYRIR Þ'A SEM VILJA VERA EDR'U OG 'OL'ETTIR UM HELGINA!! ;) :


Glasabarnakokteill


10 cl Chiquita gulrótarsítrussafi


4 cl Chiquita berjarsafi


Skvetta af sítrónusafa og grenadine


Hristið með ísmolum.


Hormónabomban


9 cl Chiquita passíuávaxtasafi


5 cl Chiquita berjasafi


fyllt upp með Apple Cider


Hristið með ísmolum.


Uppáhald Bumbubúans


10 cl Chiquita passíuávaxtasafi


4 cl chiquita sólarkokteill


fyllt upp með Apple Cider


Hristið með ísmolum


Einn fyrir svefninn


7 cl Chiquita appelsínusafi


4 cl Chiquita ananassafi


3 cl Mangósafi


Hristið með ísmolum

Hafið góða helgi öllsömul!


miðvikudagur, mars 19, 2003

Ég fór á Videoleigunna áðan og leigði mér myndinna Iris... ekki nóg með það, ég er búin að grenja og grenja og grenja og er að upplifa mikið vökvatap eftir að horfa á þessa mynd, ég myndi ekki beint segja að þetta sé sorleg mynd svona eftir á, heldur skelfilega falleg mynd sem kreistir hressilega úr tárakirtlunum! *sniff* Hormónasveiflur /eða/ Guggan orðin súpervæmin???!!
You're Carrie!
You're Carrie! A professed sexual anthropologist
and a slightly neurotic columnist, you've got
notorious weaknesses for expensive footwear,
men who tend to be utterly wrong for you, and
cosmopolitans. It's all about the Manolos,
baby!


What 'Sex and the City' Character Are you?
brought to you by Quizilla

þriðjudagur, mars 18, 2003

Hefur ykkur einhverntíma liðið eins og lífið ykkar sé auglýsing... svona happy-auglýsing, t.d eins og símaauglýsingarnar eða matarauglýsingarnar þar sem allt er perfectismo, allir brosandi og rosa happy og allt svo hreint og fínt... mér er búin að líða svona í allann dag. Ég var sú týpa að hlægja að Brúðkaupsþættinum J'A og finnast símaauglýsingarnar hallærislegra en nokkuð annað. Ég veit ekki hvort þetta séu hormónarnir að tala eða ég að verða KLIKK. Var að skoða líf mitt í gegnum sjónauka í dag og sá gifta, hamingjusama og ólétta konu! Vildi bara láta ykkur vita að kannski er ég að verða KLIKK :)

sunnudagur, mars 16, 2003

10 things i hate about Akureyri:

1. Helv**** rúnturinn... hvað er að fólki sem nennir að rúnta hring eftir hring(í kringum 3 hús) og flauta í takt við lagið "I Can´t get no satisfaction"!!!!!! (People - get a life)!

2. Djammið á Akureyri er VONLAUST!! það er hvergi til skemmtistaður - allsstaðar leiðistaðir! Þið djammrottur, það er vonlaust að koma í helgarferð til Ak. og búast við "feitu" djammi - ekki nema kannski með rétta fólkinu! ;)

3. Þynnkumatur ófáanlegur!! það er nákvæmlega engin góður súr þynnkumatsölustaður, kjúklingastaðurinn er vibbi og Pengs subbulegur(hef ég heyrt - hef allavega ekki lyst...) - það besta sem hægt er að fá er Dominos sem fær 5 í einkunn hjá mér varðandi þynnkumat!!!

4. Brynjuís... hef aldrei fattað hvað er svona gott við hann!!!!

5. Greifapizza!!! HVAÐ ER AÐ!!!

6. Á sunnudögum er alveinsgott að sofa bara... Draugabær! í mestalagi 5 þunnir HA-ingar að skríða úr bænum...

7. Psssshhhtt eigendur Akureyrar þ.e. Greifinn og Hótel kea döööööööö!

8. Vantar verslanir og fjölbreytni og fólk að sjálfsögðu!

9. VMA.... af hverju kalla þeir þetta ekki bara 3faga skólinn á AK. þú getur bara útskrifast af bíliðnabraut, smíðabraut og blikksmiðabraut... eða eitthv. álíka!! algjörlega ónýtur skóli!!

10. Göngugatan er ca 50 skref... þvílíka GÖNGUgatan!

10 things i love about Akureyri

1. Mr. Jones er frá Ak... hvað get ég sagt.... algjör GULLMOLI ;)

2. Maturinn á Friðriki V

3. Tengdaforeldrar mínir eru ÆÐI

4. Sólin & sumarið

5. Einn besti staðurinn í heiminum til að ala upp barn!

6. Vatnið án hitaveitufýlu og kísils

7. Ódýrara en í h-borginni.

8. Kirkjutröppurnar :)

9. Flugvöllurinn flottari en í RVK.

10. Hlíðarfjallið.

Úff hvað manni er heitt þegar maður er óléttur, ég hef alltaf verið mikil kuldakelling en núna er sumar hjá mér enda veðrið á Ak. eftir því 10 stiga hiti og sólskin. Mar fer bara að skella sér í bikiníið og bros fram í heiminn ;)

laugardagur, mars 15, 2003

Jæja komin úr nafla alheimsins og aftur til Ak. Komst að því í gær, mér til mikillar skelfingar að heimilið mitt hafi breyst í félagsmiðstöð fyrir homma, systkyni þeirra og 16 ára aflitaðra unglinga sem nenna að hanga með þeim... OMG... er að fríka út á þessu!!! Ég og Mr. Jones erum farin að þrá heimili okkar eins og það var, þar sem maður gat stripplast um og farið í bað með opið fram og svoleiðs... vona að ég losni við ÞETTA fyrir næstu helgi, annars held ég tónleika hérna næstu helgi og þá mun ég syngja... H'ATT!!! Hormónaspengja nr.2. :)

fimmtudagur, mars 13, 2003

ég er svo dööööööööööööööö núna... er að huxa um að sofa aðeins í hausinn minn áður en ég tjái mig .......

fimmtudagur, mars 06, 2003

... gullmolar úr hugarheimi íslenskra barna.þetta er FYNDIÐ!!

Krókódílar eru með svona fætur, bara ekki í sokkum.

Stundum fæða pabbar börn.

Það eru þjófar inni í hjartanu á mér. Það eru líka tröll þar.

Ugla sat á Kristi.

Maður getur alveg verið á eyrunum, það er svo gott veður.

Þegar ég var að hlaupa upp, þá gubbaði ég í mig.

Má ég fara út á hárinu?

Maður getur alveg notað ömmu sína fyrir vin.

Ég er með sköllótt hár.

Ég er alveg að detta úr jakkanum, því mér er svo kalt.

Viltu taka vettlingana, ég get ekki andað með höndunum, þær eru alveg að kafna.

Ef maður fæðist ekki heilbrigður, þá er maður fótbrotinn eða eitthvað.

Gjörið svo vel að rétta mér Jakob.

Munnurinn á mér var bilaður áðan, ég var alveg að fara að gubba.

Ég veit að það eru til blóm í eyðimörk, ég var þar í fermingu.

Allir nema ég eiga ekki að fá frosnu mandarínuna, því ég er svo sjaldgæfur.

Ég sá fitubollu í Kringlunni og hún var í alvörunni.

Þegar ég dey, þá verð ég Jóhann afi.

Ég er sko lítill unglingur og er ekkert hræddur við sjálfan mig.

Hann öskraði í eyrað á mér, eyrað sem var að koma úr viðgerð í gær.

Ég fæddist í kjól.

3ja ára dreng er starsýnt á barminn á brjóstgóðri konu í flegnum bol og segir: “Afhverju ertu með rassinn þarna?”

Mamma mín er með skegg á fótunum.

Ég get ekki opnað brauðið mitt. Það er barnalæsing á brauðinu mínu.

Ég sé ekkert fyrir augnabrúnunum.

Alltaf þegar pabbi minn er að tala við mig þá er ég bara heyrnarlaus.

2ja ára stúlka vildi láta pabba sinn vita að það biðu tveir menn eftir honum inni í stofu: “Pabbi, það bíða eftir þér maðar inní stofu.”

Nenni, 4ra ára: “Þegar rignir dettur fyrst eitt ský, svo annað svo annað svo annað svo annað og svo sést Guð.”

Hver skiptir um peru í tunglinu? Gunnar, 2ja og hálfs árs.

Afi spyr 4ra ára snáða: “Veistu hvað ég heiti?”

Drengur: “Já, Guðjón”. Horfir síðan stundarkorn á afa og spyr á móti:

“Veistu ekki hver þú ert?”


Ég er að fara til RVK á morgun ... vei vei!! Það er alltaf eins og ég sé að fara til úglanda þegar ég fer til RVK.... verst að það er engin fríhöfn á leiðinni ;)

Ef þið viljið sjá ógeð... kíkið á þettakláðadýr!!! Það sem fólk getur gengið langt fyrir auglýsingar... minnir mann einna helst á nicotíntyggjó-auglýsingarnar.. jæækks!

Þekkið þið fólk sem verður alltaf veikt þegar það fær hor í nefið!!... ég þekki nokkra og sumir eru ekki einu sinni að reyna að láta sig batna...vilja ekki sníta sér eða drekka te... Þegar maður er með hor í nefinu... snítir maður sér, maður er ekki endilega veik/ur!!! Sorrý smá hormónasprengja ..kvviiiizz BAAAAng!!


miðvikudagur, mars 05, 2003





Þú ert Davíð Oddsson:

Þér finnst þú vera frábær og flestir aðrir
aumingjar (nema Össur; hann er dóni). Þú ert oft hnyttin(n) og
skemmtileg(ur) en þeir þættir týnast þó í valdhrokanum sem er að sliga þig.

Taktu "Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?" prófið





hehehheehe.... þetta er fyndið!!!

þriðjudagur, mars 04, 2003

Jæja kindurnar mínar.. það er bara allt á öðrum endanum í pólitíkinni þessa daganna, Who cares!!! þetta verður búið áður en við blikkum augunum í næstu viku... kannski! Ég er svo ómálefnaleg í stjórnmálum að ég held að 1/4 heilafrumu í mínu heilabúi nái yfir stjórnmál, enda er maður ekki ljóshærður fyrir ekkert og vitiði ... mér er alveg sama :) Bolluát helgarinnar hefur tekið sinn toll!! og ekkert við því að gera núna, en sprengidagur er ekki minn dagur, mér finnst saltkjöt og baunir EKKI gott!! þannig að ég og Mr.Jones fórum í norskan sveitamat til tengdó, sem var ÆÐI!!! Ég held ég fari framvegis í mat til tengdó á Spengidag :þ Annars er Malli kominn með heimasíðu veiiii.. endilega kíkið á hana og skrifið í gestabókina, myndir væntanlegar... er búin að vera svo morkin undanfarna daga að ég hef ekki lagt í bumbumyndatöku, ég skelli mér kannski í Dynasty-kjólinn minn og fer blástur og verð eins og Kata Zeta !! :) Bleesss í bili!!